Tímarit Máls og menningar - 01.10.1969, Blaðsíða 100
Leo Huberman
Hvers vegna sósíalismi?
Leo Huberman, annar ritstjóri hins ágœta bandaríska tímarits, Monthly Review,
lézt í rwvember í jyrra. Tveimur dögum áður hafði hann flutt erindi það sem
hér er birt í íslenzkri þýðingu, á ráðstefnu um málefni rómönsku Ameríku
á vegum háskólans í Nijmegen í Hollandi. Huberman hafði skrifað flestum
mönnum betur um málefni Kúbu, og þangað er efnið í síðasta erindi hans sótt.
Til eru þær þjóðir heims sem eru fátækar
vegna þess að þær skortir auðlindir. En
sú er ekki raunin um ríki rómönsku Ame-
ríku. Þau ráða yfir gnægð auðlinda sem
nægja til þess að gera þjóð ríka. Engin
heimsálfa kemst í samjöfnuð við róm-
önsku Ameríku að því er tekur til ræktan-
legs og frjósams lands eða skóga. Sé gerð
skrá yfir þá málma sem mikilvægir eru
iðnþróun — kopar, tin, járn, silfur, gull,
sink, blý — er þá alla að finna í ríkum
mæli í rómönsku Ameríku, ennfremur olíu-
lindir og vatnsorku.
Samt eru þjóðir rómönsku Ameríku ör-
snauðar. Staðreyndir um það efni voru
raktar af John F. Kennedy, fyrrum forseta,
þegar hann mælti á þingi fyrir tillögu
sinni um framfarabandalag 14da marz
1961:
Árleg þjóðarframleiðsla á mann
nemur að jafnaði aðeins 280 dollurum,
en það er tæpur níundi hluti þjóðar-
framleiðslunnar í Bandaríkjunum —
og á stórum svæðum, þar sem miljónir
manna húa, er hún innan við 70 doll-
ara ...
Meðalaldur Bandaríkjamanna er 70
ár, en í rómönsku Ameríku er meðal-
ævi aðeins 46 ár ... Smábamadauði
hjá okkur er tæplega 30 af þúsundi,
en tæplega 110 af þúsundi í rómönsku
Ameríku ...
Nær helmingur fullorðins fólks er
ólæs og óskrifandi og allt að 90 hundr-
aðshlutum í einu landi. Og um helm-
ingur bama á skólaskyldualdri á þess
ekki kost að sækja neina skóla ...
I einni af helztu stórborgum róm-
önsku Ameríku býr þriðjungur allra
íbúanna í saurugum og óhæfum fá-
tækirahverfum. í öðra landi hafast
fjórir íhúar af hverjum fimrn við í
bráðabirgðaskúrum og skálum ...
Fátækt, ólæsi, vonleysi og sú kennd
að vera órétti beittur — þær aðstæður
sem valda stjórnmálalegum og félags-
legum ófriði — eru að heita má ríkj-
andi í sveitum rómönsku Ameríku.
Kennedy lýsti ekki aðeins þörfunum,
hann flutti einnig tillögur um nauðsyn-
legar ráðstafanir: „Áætlun um umbætur í
landbúnaðarmálum, menntamálum, heil-
brigðismálum og húsnæðismálum______Það
er brýn þörf á fullkomnari og fjölbreyti-
legri búvöruframleiðslu, réttlátari skipt-
ingu á eignum og tekjum og víðtækari að-
ild almennings að framþróuninni.“
Lýsing Kennedys á ástandinu og þvi sem
194