Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 29
Dauða leikhúsið á leikhúsið hefur fætt af sér leikstjórann. En krafan um heildaráhrif hefur einkum beinst að ytra borðinu og stílblöndu þess, þar sem hætta hefur verið á að andstæðir eða ólíkir stílar rækjust á. Ef við gefum gaum að því hvernig hægt er að tjá innra samhengi í flóknu leikriti getur vel farið svo að við komumst að allt annarri niðurstöðu, sem sé þeirri að vissir árekstrar milli ytri þátta séu óumflýjanlegir. Ef við göngum skrefi lengra og tökum áhorfendurna og þjóðfélag þeirra sannfærumst við e. t. v. um að við náum ekki að steypa þessum frumþáttum í eina heild nema með áhrifum sem eru að öðru jöfnu tengd ljótleika, ósamræmi og eyðileggingu. I traustu og friðsælu samfélagi kynni hlutverk leikhússins að vera það eitt að endurspegla og staðfesta innra samræmi þess. Slíkt leikhús gæti stefnt að því að sameina áhorfendur og leikara í einu allsherjar jái. En í trylltum og veglausum heimi verðum við iðulega að velja á milli leikhúsa sem bjóða veikburða „já“ og þeirra sem veita svo heiftúðuga ögrun að áhorfendurnir tvístrist í lifandi og andstæða hópa sem segja „nei“. Ég hef lært mikið á því að halda fyrirlestra um þessi efni. Ég veit að þegar hér er komið sögu rís ævinlega einhver áheyrandi úr sæti og spyr eftirfar- andi spurninga: í fyrsta lagi hvort ég vilji leggja niður öll leikhús sem uppfylli ekki háleitustu kröfur, í öðru lagi hvort ég telji fólk hafa slæmt af því að skemmta sér og í þriðja lagi hvað ég vilji gera við áhugamenn. Ég er vanur að svara því að ég hafi engan áhuga á því að setjast í eitthvert dómarasæti, banna eitthvað eða spilla ánægju annarra. Ég ber fulla virðingu fyrir stofnanaleikhúsum og frjálsum hópum sem reyna að gera eins vel og þeim frekast er unnt við mjög erfiðar aðstæður. Ég ber einnig fulla virðingu fyrir skemmtanaþorsta annarra, ég tala nú ekki um léttúð annarra; ég dróst sjálfur að leiklistinni af skemmtanafýsn og talsverðu ábyrgðarleysi. Það er ekkert athugavert við að fólk skemmti sér. En engu að síður spyr ég þá sem spyrja mig, hvort þeim finnist leikhúsið veita þeim það sem þeir óska eftir þegar á heildina er litið. Þegar ég tala um dautt leikhús á ég við að allur frjór lífsneisti í því sé slokknaður. Hinsvegar getur slíkt leikhús verið óhugnanlega virkt og í virkninni gæti breyting verið fólgin. Fyrsta skrefið í átt til breytingar eða lífgunar er að horfast í augu við þann beiska sannleik að flest það sem gengur undir nafninu leikhús í heiminum nú sé afskræming þess orðs sem eitt sinn var þrungið merkingu. Öld eftir öld, í friði jafnt sem styrjöld, flytur líkvagn menningarinnar leifar listamanna í ruslahauginn mikla. Leik- hús, leikarar, gagnrýnendur og áhorfendur eru hjól í voldugri vél sem oft marrar í; þó gefur hún sig aldrei. Alltaf tekur nýtt leikár við og alltaf erum við of önnum kafin til þess að spyrja þessarar einu brennandi spurningar sem tekur til allrar vélarinnar: Hvers vegna leikhús? I hvaða tilgangi? Er 395
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.