Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 26

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 26
Tímarit Máls og menningar skuld koma stöku sinnum fyrir frábærar undantekningar frá þessari reglu. En nú er mér efst í huga samanburður á því sem er skrifað fyrir kvikmynd- irnar og því sem kemur fram af nýjum leikritum fyrir sviðið. Þegar reynt er að líkja eftir veruleikanum í nýskrifuðu leikriti verður eftirlíkingin oft- astnær meira áberandi en veruleikinn; þegar sýna á sálarlíf fólks er sjaldnast boðið upp á annað en gamlar og útslitnar týpur. Ef deilur eru viðfangsefnið ber varla við að þær þróist yfir í verulega áhugaverð átök; ef leggja á mat á lífsgæðin verður yfirleitt lítið annað úr því en safn af fallega skrifuðum setningum. Þótt höfundurinn ætli að gagnrýna félagslegar meinsemdir kemur hann varla nokkurn tíma við kaunin á einum né neinum og vilji hann aðeins vekja hlátur hefur hann ekki annað til þess en gamalkunnar, þrautreyndar brellur. Afleiðingin er sú að við neyðumst til að velja á milli þess að sviðsetja góð og gömul verk og ný verk sem okkur þykir ekki nógu góð, til þess eins að „fylgjast með tímanum". Leikhúsfólk getur einnig fitjað upp á nýju leikriti sjálft eins og þegar hópur leikara og höfunda í Konunglega Shakespeare leikhúsinu vildi sviðsetja leikrit um Vietnamstríðið, en ekkert slíkt var til. Þá var hafist handa við að semja leikrit og nota spuna og hópvinnu í stað þess að semja í byrjun samfelldan texta. Ef hópurinn hefur miklu að miðla getur afrakstur slíkrar hópvinnu orðið margfalt ríkulegri en eitt bágborið höfundarverk, en það sannar ekkert í sjálfu sér. Enginn (sam)starfshópur getur gætt verk þeirri skerpu og festu sem höfundurinn er einn fær um að veita því. Fljótt á litið sýnast fáir vera jafn frjálsir og leikskáldið sem getur fært allan heiminn upp á leiksvið sitt. Þegar til kastanna kemur er hann þó furðu uppburðalítill. Hann lítur á allt lífið í kringum sig, og eins og við hin sér hann aðeins lítið brot af því, og síðan fær hann áhuga á einni hlið þessa brots. Til allrar óhamingju reynir hann sjaldnast að setja þetta litla brot sem hann vinnur með í samband við einhverja stærri heild — eins og innsæi hans næði til alls sem er og veruleiki hans væri veruleikinn sjálfur. Það er engu líkara en oftrú hans á eigin skarpskyggni komi í veg fyrir að hann geri upp á milli þess sem hann hefur fyrir augunum og þess sem hann hefur aðeins hugsað um. Og síðan sitjum við uppi með tvenns konar höfunda: annars vegar þann sem fer á kaf inn í eigin vitund og leitar fyrir sér í hálfrökkri sálarinnar, og hinn sem forðast þessi svið og heldur sig við ytri veruleikann einan saman. Að sjálfsögðu trúa þeir því báðir að þeirra heimur sé allur heimur. Hefði Shakespeare aldrei verið uppi myndum við eflaust ímynda okkur að þessir tveir höfundar gætu aldrei mæst. En leikhús Elísabetartímans var til og fordæmi þess ögrar okkur án afláts. Fyrir fjögurhundruð árum gat 392
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.