Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 71

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 71
Bókmenntagagnrýni dagblaðanna einhverja algilda mælistiku og mat þeirra sé niðurstaða fullkomlega hlut- lægrar könnunar sem ekki verði deilt um.12 Þannig fær lesandi á til- finninguna að í stað einstaklings með eigin skoðanir standi á milli lesandans og skáldverksins einhver ógagnsær og óræður hluti bókmenntastofnunar- innar svonefndu og tali í gegnum gagnrýnandann. Dómi hans verði ekki hnikað, því hann sé að segja sannleikann um verkið. Franski strúktúralist- inn Roland Barthes, sem afhjúpað hefur ýmsar goðsagnir nútímamenning- ar, þar á meðal margar sem tengjast gagnrýni, bendir réttilega á að hlutverk gagnrýni sé ekki að uppgötva einhvern „sannleika“ í viðkomandi verkum — hann er uppgötvaður af hverjum lesanda fyrir sig — heldur að vinna úr samhengi textans (innbyrðis og út á við) ákveðna rökstudda niðurstöðu. Gagnrýnandinn verður þá að koma fram sem einstaklingur og sem for- svarsmaður þessarar niðurstöðu, hann verður að birtast í gagnrýninni sem ábyrgur maður fyrir eigin skoðunum.13 Peter Hamm er á svipuðu máli um stöðu gagnrýninnar í grein um þýska blaðaritdóma: „Gildismat", segir Northorp Frye, „er ætíð smekksmat". En þar sem einungis nokkrir stórgagnrýnendur upplýsa áhugafólk um bókmenntir — eins og hér í V-Þýskalandi — hlýtur slíkt óhjákvæmilega að koma svo fyrir sjónir sem væru dómar þeirra hlutlægir („objektífir") dómar, svo fremi þessir gagnrýn- endur láti ekki uppi hvað leitt hafi þá persónulega að þessum og einmitt þessum dómi, svo fremi þeir gangist ekki við að sjónarmið þeirra sé einstakl- ingsbundið („súbjektíft“).M „Stórgagnrýnendur“ kallar Hamm þann hóp ritdómara sem starfar fyrir útbreiddustu og áhrifamestu blöðin og sem jafnframt hefur gagnrýni að aðalatvinnu. A Islandi er líklega fátítt að gagnrýniskrif séu stunduð sem aðalstarf, en hitt er ljóst að það er tiltölulega lítill hópur manna sem ár hvert skrifar opinbera gagnrýni og því hygg ég að orð Hamms eigi ekki síður við okkar þjóðfélag en það þýska. Að mínu mati mega ritdómarar almennt við því að verða minni „dóm- arar“ og meiri einstaklingar í skrifum sínum. Ritdómarinn verður síður en svo minni gagnrýnandi þó að hið ópersónulega „yfirvald" hverfi úr gagnrýni hans. Hann þarf alls ekki að vera með neinn undanslátt, eða horfa fram hjá því sem honum mislíkar eða hann álítur illa gert í skáldverki. En hann þarf að gera sér ljóst hvenær slíkt álit er sprottið af hans eigin smekk á skáldskap og hvenær um er að ræða missmíð sem hann álítur að hægt sé að greina sem slíka út frá almennum forsendum. I fyrra tilfellinu þarf hann að gera grein fyrir smekk sínum svo lesanda sé ljóst frá hvaða sjónarhóli slíkt mat kemur, og í síðara tilvikinu þarf hann að styðja mál sitt góðum rökum, þó svo þau verði auðvitað sjaldan endanleg og óhaggandi.15 437
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.