Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Side 79

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Side 79
Bókmenntagagnrýni dagblaðanna ir), en að öðru leyti skýrir hann ekki þennan „klofning“ í sögunni. Hann gefur í skyn að engin lifandi tengsl myndist milli persóna sem dregnar eru upp og hinna pólitísku umsvifa, en af hverju fjallar hann þá ekki um slíkan regingalla? Eða er það kannski hans persónulegi smekkur sem hér ræður skrifum; er það ritdómarinn sjálfur sem er ekkert hrifinn af svona pólitísku brölti í sögum, en aðrir gætu verið ósammála? Um þetta getur lesandi ekkert vitað. Annaðhvort verður hann að trúa orðum ritdómarans skilyrð- is- og gagnrýnilaust eða hann er í tómarúmi. Jón Viðar Jónsson fellur í sínum ritdómi í gamalkunna gryfju. Hann sér í sögumanni bókarinnar (sem er rithöfundur og talar beint til lesenda í 1. persónu) persónu sjálfs rithöfundarins, þ. e. Kristjáns Jóhanns, og dæmir út frá því. En eins og allir hinir gagnrýnendurnir minnast á verður að varast slíkt í þessari sögu, þar sem á köflum er erfitt að sjá skil á milli „rithöfund- anna“ (eins og í seinni hluta 8. lesendabréfs, sem Jón Viðar birtir í heild), en söguhöfundur horfir annars staðar á sögumanninn úr írónískri fjarlægð (sbr. fyrri hluta sama bréfs). Jón Viðar skoðar þessi bréf hins vegar sem „bókmenntafræðilegar orðsendingar“ frá höfundi til lesanda og ræðst nú á hinn fyrrnefnda með miklu háði: „. . . þar virðist höfundur reyna að útskýra hvers vegna saga hans er jafn góð og raun ber vitni. í þessum bréfum fær hinn fáfróði lesandi m. a. að vita . . .“ í þessum dúr tekur Jón Viðar svo fyrrnefnt 8. lesendabréf fyrir, skoðar það sem „listrænt pró- gramm“ bókarinnar og þykist þekkja þar „natúralismann, gamla og góða“. Slíkt nær ekki nokkurri átt þegar verið er að ræða verk með vísvituðum vangaveltum um stöðu höfundar sem gefist hefur upp við alla heilsteypta endurspeglun veruleikans — þar hefur okkur borið langan veg frá natúral- ismanum. Þetta minnir á hversu varnarlaus stór hluti blaðalesenda hlýtur að vera þegar gagnrýnendur nota sér, án frekari útlistana, hugtök úr bókmenntafræðinni; það hljóta að vera hlutfallslega fáir meðal almennings sem sagt geta til um hvernig viðkomandi hugtök eru notuð og hvort rétt er með farið. Það sem þó er neikvæðast við ritdóm Jóns Viðars er að mínu mati tónninn í skrifum hans, blandinn hæðni og lítilsvirðingu. I framhaldi af talinu um natúralismann segir hann til dæmis: Fer þessi 19. aldar listfræði eflaust ágætilega saman við stéttarbaráttuhug- myndir þær sem gegnsýra bókina og virðast höfundinum ekki síður hug- leiknar en mannlífið sem hann telur að leiti á sig. Ekki sé ég betur en að í síðustu orðunum felist hálfgildings móðgun, þegar ritdómarinn gefur m. a. s. í skyn að ekkert raunverulegt mannlíf sé höfund- 445
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.