Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 108

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 108
Tímarit Máls og menningar útvarpi og kvikmyndum, úr tískuaðferð í mannlegan viðburð. — Imyndið ykkur leikatriði um fjölskyldu: móðirin er í þann veginn að þrífa brons- styttu til að kasta í dóttur sína; faðirinn er í þann mund að opna gluggann til að kalla á hjálp. A þessu augnabliki gengur ókunnugur gestur inn á sviðið. Framvindan er rofin; í hennar stað koma í ljós aðstæður sem nú blasa við augum hins ókunnuga: afskræmd andlit, opinn gluggi, húsbúnað- ur á rúi og stúi. En það sjónarhorn er til sem gerir jafnvel hversdagslegri fyrirbæri nútímalífs þessu lík. Það er sjónarhorn epíska leikhúsmannsins. Hann teflir fram tilraunastofu leikhússins gegn fullkomnu og frágengnu leikhúsverki. Hann grípur á nýjan hátt til hins gamla og góða möguleika leikhússins — að geta varpað ljósi á viðstadda. Kjarninn í tilraunum hans er manneskjan. Manneskja nútímans; þ. e. a. s. smækkuð, mótuð af köldu raunsæi í köldu umhverfi. En þar sem við eigum ekki kost á annarri manneskju en þessari, þá langar okkur til að kynnast henni. Hún er vegin og metin. Niðurstöðurnar eru þessar: Það er ekki hægt að breyta fram- vindunni þegar hún nær hámarki sínu, ekki með dyggðum og ákvörðun- um, heldur aðeins þegar hún fylgir sínum venjulegu föstu brautum, með skynsemi og æfingu. Það er hlutverk epíska leikhússins að búa til það sem í leikhúsfræði Aristotelesar er nefnt „athöfn" úr smæstu þáttum hegðunar. Þess vegna er tækni þess líka fábrotnari en í hefðbundnu leikhúsi; sama er að segja um markmiðin. Því er ekki ætlað að hræra upp í tilfinningum áhorfenda, jafnvel þó þær heiti uppreisnarandi, heldur að gefa áhorfendum yfirsýn yfir aðstæður sínar, færa þá í vissa fjarlægð frá þeim til þess að vekja þá til umhugsunar um þær á varanlegri hátt. I framhjáhlaupi skal svo á það bent að ekki verður hugsunin betur örvuð af öðru en hlátri. Og sérstaklega er ör hreyfing þindarinnar huganum hagstæðari en hræringar sálarinnar. Epíska leikhúsið heldur sig ríkmannlega einungis þegar kemur að því að kitla hláturstaugar áhorfendanna. Kannski hafið þið tekið eftir að í þeim hugleiðingum sem nú er að ljúka er bara gerð ein krafa til rithöfundarins, krafan um að velta vöngum, að hugleiða stöðu sína í framleiðsluferlinu. Það má treysta því að niðurstöður þessara vangaveltna hjá rithöfundum sem máli skipta, þ. e. bestu tækni- mönnum í sínu fagi, leggi grundvöll að samstöðu þeirra með verkalýðnum á yfirvegaðan hátt. Mig langar að lokum að koma með raunhæft sönnun- argagn fyrir þessu og segja frá lítilli grein úr Parísartímaritinu „Commune". „Commune" sendi út fyrirspurnina: „Fyrir hvern skrifið þér?“ Eg vitna hér í svar René Maublanc auk viðeigandi athugasemda frá Aragon.19 „Eflaust skrifa ég,“ segir Maublanc, „nær eingöngu fyrir borgaralega lesendur. I fyrsta lagi vegna þess að ég er tii þess neyddur" — hér vísar Maublanc til starfs síns sem menntaskólakennari —, „í öðru lagi vegna þess að ég er af 474
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.