Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Qupperneq 39

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Qupperneq 39
Pilturinn sem fór útí heim bera myndarleg horn á höfðum sér og úr þessum hornum bunar vatn eftir þörfum í grænmetisgarða, sem eru samgrónir brjóstkössum persónanna. I þessari kynjaveröld verða börnin til með þeim hætti að foreldrarnir gróður- setja í sameiningu frækorn í stórri tunnu. Að lokinni þessari merku athöfn — sem verður reyndar að eiga sér stað að vorlagi — er kyrfilega frá tunnunni gengið og þvínæst er beðið þartil sumarið er á enda. Að hausti skríður síðan lítil vatnsberastelpa eða lítill vatnsberastrákur úr hverri tunnu sem sáð hefur verið í, og allir eru nýfæddir krógarnir ilmandi af hreinleika. Náttúrlega koma börnin spariklædd í heiminn og hlaupa þegar í stað al- talandi útum allar trissur. I stuttu máli sagt fæðast börnin snyrtileg, á aldrinum fimm til átta ára og búin eftir nýjustu tísku. I þessu verki birtist okkur enn eitt sýnishorn mikilfenglegs skáldskapar og blómstrandi ímyndunarafls. Við skulum huga að enn einu dæmi: „Krukkuborg" eftir Odd Björnsson, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu veturinn 1978—79 í sviðsetningu Þórhalls Sigurðssonar. Sá „manneskjulegi og skyn- samlegi boðskapur" sem fluttur er í þessu verki birtist í þeirri skýlausu kröfu að pólitískt skoðanafrelsi fái að blómstra í konungsríkjum. Aukreitis er svo þessi boðskapur kryddaður með innskoti um aukna mengun úthaf- anna. Hið skáldlega tillegg er fólgið í því að meginatburðir leiksins eru látnir gerast í draumi, en draumnum er valið svið í ríki undirdjúpanna, eða á hafsbotni. I hópi þeirra sem koma fyrir í leiknum má finna fiska, kol- krabba, hafmeyjar, kónga og hvunndagsfólk. Af þessu má sjá að skáldskap- arlistin og ímyndunaraflið dafna vel við hinar fáheyrðustu og kynlegustu aðstæður. Það er aðeins einn vettvangur þarsem þetta tvennt nær sér aldrei á strik: raunveruleikinn sjálfur. Sagan Að þessum dæmum upptöldum langar mig að víkja að inntaki og uppruna þess viðhorfs til listarinnar sem gerir ímyndunaraflið útlægt úr heimi raunveruleikans og takmarkar það við heim ævintýranna, — einsog ekkert sé sjálfsagðara. Sérstakt leikhús fyrir börn á sér í flestum Evrópulöndum ekki nema u. þ. b. hundraðogþrjátíu ára sögu. Aður fyrr voru börnin nánast frá fæðingu sjálfsagðir gestir á leiksýningum fyrir fullorðna. Þegar leikhús flytur í fyrsta sinn sérstakar sýningar fyrir börn má segja að tvær eldri leiklistar- greinar verði að einni og sameinist í hinu nýja leikhúsi: barnalátbragðs- leikurinn og kennsluleikhúsið. I barnalátbragðsleikjum sýndi unga fólkið fullorðnum listir sínar með leik, söng, dansi eða látbragðsleik. Elstu heimildir um barnalátbragðsleiki 405
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.