Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 69

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 69
Bókmenntagagnrýni dagblaðanna Með því að skýra þannig innbyrðis tengsl hinna ýmsu þátta skáldverks- ins (vel að merkja frá sínum sjónarhóli; ólíklegt er að nokkrir tveir skynji þau tengsl á nákvæmlega sama hátt) getur gagnrýnandinn orðið til að auka gildi skáldverksins fyrir lesandanum og ef vel lætur orðið honum kveikja til að velta frekar vöngum yfir því, sjá nýjar hliðar þess, verða sjálfur virkari „gagnrýnandi“ og komast kannski að öðrum niðurstöðum en ritdómarinn. Eflaust eru einhverjir gagnrýnendur mér ósammála í því að slíkt greiningar- eða skýringarstarf eigi að vera í miðpunkti gagnrýninnar. Og eftir íslenskum ritdómum að dæma eru mér heldur ekki allir sammála um að gagnrýni þurfi einnig að gera einhver skil því bókmenntasamhengi sem verkið er í. Auðvitað verður ekki við komið mikilli úttekt á því, en ýmist er hægt að minnast á stöðu verksins gagnvart öðrum verkum höfundar, stöðuna innan viðkomandi bókmenntagreinar eða gagnvart hefðbundnum verkum; möguleikarnir eru margir. Ekki er óeðlilegt að ritdómari skjóti jafnframt að hugleiðingum um stöðu og þróun bókmennta, þó svo slíkt eigi auðvitað ekki heima í sérhverjum ritdómi. En eins og með greiningu verka tel ég gagnrýnanda geta virkað örvandi á lesanda, „ýtt við honum“ með umræðu um bókmenntalegt samhengi og fengið hann til að velta frekar fyrir sér stöðu verksins. Afstaða gagnrýnenda virðist afar misjöfn hvað þetta varðar. Sumir fjalla ítarlega um slíka stöðu verksins út á við, en aðrir snerta alls ekki á henni. Alit mitt er að ritdómar hafi þremur meginverkefnum að sinna, sem eru greining verksins, umfjöllun um stöðu þess í bókmenntunum og persónu- legt mat gagnrýnandans — án þess að þetta þrennt geti verið greinilega aðskilið í ritdómnum sjálfum. Ritdómurinn í heild ætti síðan einnig að geta staðið sem kynning á verkinu fyrir þann sem ekki þekkir það og vill fræðast. Mér virðist fremur fátítt að ritdómarar tjái sig beint um það hverja þeir telji nauðsynlega meginþætti ritdóma. Tvo þýska gagnrýnendur get ég þó vitnað í. Henning Rischbieter kveðst í ritdómum sínum reyna að setja fram lýsingu á verki, með það fyrir augum að hún þróist yfir í greiningtt, sem að lokum leiði af sér mat eða dóm.b Heinz Ohff telur þrjú helstu verkefni gagnrýni vera: 1. Að veita lesendum upplýsingar um verkið; 2. Að vera eins konar hljómbotn fyrir listamanninn (sjá hér að neðan); 3. Að skilgreina verkið.7 Hverjir sem taldir eru meginþættir gagnrýni, er ljóst að ritdómur er ætíð „meta-texti“, þ. e. texti um texta, og sem slíkur á hann sér stað á milli skáldverksins og lesandans. Aður en ég ræði frekar um þessa stöðu rit- dóma, vil ég þó minnast á þá hlið þeirra sem að rithöfundinum snýr og sem Ohff telur fela í sér eitt þriggja verkefna gagnrýninnar. Eg get verið sammála því að gagnrýnendur eigi að vera rithöfundum „hljómbotn“; 435
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.