Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 85

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 85
Bókmenntagagnrýni dagbláðanna verkið verði umyrðalaust að trúa fyllyrðingum gagnrýnandans. Þarna tel ég að sé kominn meginannmarki margra íslenskra blaðadóma. Eg hef að framan sýnt fram á hvernig lesendur eru á einn eða annan hátt skildir eftir í tómarúmi. Þeir fá að heyra að verk sé „gott“ eða „vont“, „stílhreint", „sann- færandi“, „nýstárlegt" eða „áhrifamikið“; enginn hörgull er á fullyrðing- um um kosti og galla. Lesandi fær semsé oftast svar við spurningunni „Elvernig líkar þér bókin?“ En fari hann að spyrja „Hvers vegna?“ eða „ A hvaða hátt?“ verður fátt um svör. Og stundum hirða gagnrýnendur svo lítt um að rökstyðja mál sitt að ég held að hver maður hljóti að reka upp stór augu. Til dæmis má taka ritdóm Erlendar Jónssonar um í borginni okkar eftir Véstein Lúðvíksson (Mbl. 16. des. 1981). I upphafi ræðir hann um að sögur bókarinnar eigi „rætur í raunveruleika en teygja sig upp í bláloft ævintýrs, sveimhygli og staðleysu." Hér verður að finna að því að ritdómar- inn segir síðan ekkert um tengslin milli raunveruleika og ævintýrs í verkinu. Eftir að hafa drepið á efni nokkurra sagna og talað um ágæta spretti í þeim, slær Erlendur nefnilega þennan botn í mál sitt: En svo fer það saman að einhvers konar leikaraskapur grípur höfundinn og stíllinn fer úr böndunum. Af því dreg ég þá ályktun að Vésteinn Lúðvíksson standi nokkuð föstum fótum í raunsæinu en fatist í hugarfluginu. Hvernig var þessi „ályktun“ dregin? Hver eru tengslin milli leikaraskapar og stíls sem fer úr böndum annars vegar og þess að standa „föstum fótum í raunsæinu“ hins vegar? Og hvað á gagnrýnandinn yfirleitt við með „raunsæi" í þessu sambandi? Kostir, gallar og smekkur. Persónuleg gagnrýni Eitt af grundvallaratriðum í undirbyggingu skoðana og niðurstaðna er að gagnrýnandinn geri sér grein fyrir hlutdeild síns persónulega smekks í þeim. Þessu er oft ábótavant í ritdómum eins og að framan sést. Það reynist stundum ómögulegt fyrir lesanda að greina hvort ritdómarinn er að dæma eftir smekk sínum þegar hann er með aðfinnslur eða hvort hér eru á ferðinni gallar sem hafnir eru yfir einstaklingsbundinn smekk. Til að um hið síðara geti verið að ræða vantar iðulega rökstuðning, en hið fyrra virðist hins vegar oft varla koma til greina þar sem afstaðan til verksins er svo óljós. Af hverju skyldu gagnrýnendur vera svo feimnir við að greina lesendum frá smekk sínum og skoðunum og því hvernig viðkomandi verk falli að þeim? Slíkt hefði í för með sér að lesendur ættu mun auðveldara með að átta sig á umfjöllun þeirra, því þegar ritdómarar gera ekki grein fyrir persónulegri afstöðu sinni er erfitt fyrir lesanda að vita á hvaða forsendu niðurstaða hans byggist. Ekki síst þegar niðurstöðurnar koma 451
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.