Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 114

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 114
Tímarit Máls og menningar Að hluta birtist hér einnig skáld- skaparafstaða Stefáns, andóf gegn svo- nefndum „opnum ljóðum“. I heimsósómakvæði í Hliðinni á sléttunni eru þessar ljóðlínur: Hann er þegar orðinn skæðasta meindýr jarðar. Vegna örrar tímgunar sinnar er hann að eyða öllu lifandi og dauðu á láði í lofti og legi. (Ljóð 95) Þessi hugsun er í Farvegum tekin upp í meitlaðra, skáldlegra formi: A bæklað orð slær bjarma af ljósum stofni ennþá veitirðu sekasta dýrinu skjól fyrir vindum (14) Og þá koma fram í hugann lokaorð fyrrnefnds kvæðis úr Hliðinni á sléttunni sem vel mættu vera einkunnar- orð allrar þessarar bókar: Fyrirgefið mér guðir þessar jórtruðu tuggur vikublaðanna. Lofið varir ljóðið og ástina fram á yztu nöf. Þorleifur Hauksson. FRJÁLSHYGGJAN Það eru merk tíðindi þegar gefin er út bók um þjóðfélagsmál eftir vinstri mann á Islandi. Þegar við bætist að útgefandinn er sá hópur róttæklinga sem staðið hefur að tímaritinu Svart á hvítu og fleiri merkum hlutum þá hopp- ar hjartað í byltingarsinnuðum marx- ista; hann tekur við bókinni með titr- andi höndum og hefur lesturinn með áfergju. — En, þvílík vonbrigði. Það verður að segjast alveg eins og er: bók Birgis Björns Sigurjónssonar, Frjáls- hyggjan, er hroðvirknislega hugsuð, hún er skrifuð á óskiljanlegu máli, hún er uppfull af rangfærslum um kenningar borgaralegra hagfræðinga og fleira, og sú efnahags- og stjórnmálastefna sem er boðuð er hvorki sjálfri sér samkvæm, skynsamlega rökstudd né jafnvel fram- farasinnuð. Þetta eru stór orð. En þetta eru líka orð sem verður að segja skýrt og skorin- ort. Róttækir sósíalistar hafa engin efni á að fara í feluleik eins og íhald og kratar gerðu eftir útkomu bókar Olafs Björnssonar Frjálshyggja og Alræðis- hyggja, sem allir vel menntaðir borgara- legir hagfræðingar á Islandi vita að er að mestu rugl. Valdstéttin nærist á þeim óheiðarleika og tepruskap sem hún kall- ar kurteisi og tillitsemi. Róttækir sósíal- istar hafa ekkert að vinna og öllu að tapa á að taka upp slíkar hefðir. En til þess að gagnrýni verði róttækum sósíal- istum það lífsafl sem hún þarf að vera, þá er nauðsynlegt að hún sé vönduð og málefnaleg. Það er sérstaklega nauðsyn- legt að rökstyðja vel stóryrði eins og þau sem standa hér fyrir ofan. Ó þú ylhýra málib. Sjálfsagt glotta ýmsir þegar þeir sjá mig setjast í kennarastellingar til að benda öðrum á hvernig eigi að skrifa skiljan- lega um efnahagsmál og pólitík á ís- lensku. En ef ég segi að bók Birgis sé svona fimm sinnum erfiðari og á fimm sinnum verra máli en það versta sem ég hef skrifað, þá ættu sömu aðilar að fá einhverja hugmynd um stílbrögðin í bók Birgis. Við lesturinn varð mér hvað eftir annað hugsað til allra þeirra ís- 480
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.