Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Page 128
Tímarit Máls og menningar
Og þá ber að hafa það hugfast að á
meðal okkar eru eldheitir stuðnings-
menn erlendra stóriðjuhagsmuna sem
gera gys að sjálfstæðisbaráttu þjóðar-
innar. Jafnvel menn sem nefna sjálfa sig
samviskusama marxista láta sig hafa það
að hæðast að baráttunni gegn ágangi
auðhringavaldsins.
Rangfxrslur varðandi hugtök
og fleira þess háttar
Asgeir fullyrðir að ég skilgreini hug-
takið Paretokjörstaða ranglega. Hann
segir að skilgreining mín sé „þveröfug
við það sem Pareto sagði“. Hér ruglar
Asgeir saman skilgreiningum á Pareto-
hagkvæmni og Paretokjörstöðu. Hann
notar skilgreiningu á Paretohagkvæmni
fyrir skilgreiningu á Paretokjörstöðu.
Það er í sjálfu sér sorglegt fyrir hinn
kokhrausta ritdómara að afhjúpa á
þennan hátt vankunnáttu sína svo eftir-
minnilega. En hann virðist heldur ekki
vera sér meðvitaður um það að um-
ræðan um velferðarhagfræðina í Frjáls-
hyggjunni er miklu umfangsmeiri en sú
sem hann telur að hefði átt að vera í
bókinni. Eg vísa til kafla 2 í bókinni.
Þetta bendir óneitanlega til þess, að
hann hafi ekki talið nauðsynlegt að lesa
bókina vandlega áður en hann ritaði
gagnrýni sína.
Asgeir fullyrðir ennfremur að ég skil-
greini með röngum hætti hugtakið „lög-
mál Says“. Eg veit ekki hvaða bækur
menn lesa sem hafa haft þá áráttu að
vilja kynna sér borgaralega hagfræði.
En augljóst er að Asgeir hefur til heim-
ildar hagfræðing sem þekkir ekki mun-
inn á lögmáli Says og lögmáli Walras.
Innan vissra hópa hagfræðinga hefur
raunar verið reynt að gera sem minnst
úr þessum mismun í vissum tilgangi,
einkum meðal peningamagnshagfræð-
inga. Eitt höfuðrit um sögu hagkenn-
inga, Economic Theory in Retrospect
(1964), eftir M. Blaug, staðfestir skil-
greiningu mína á lögmáli Says (bls. 137)
og sömuleiðis skilgreiningu mína á lög-
máli Walras (bls 131). Um misskilning
sömu tegundar og Asgeir gerir sig sekan
um ræðir M. Blaug víða í bók sinni. Eg
efast raunar ekki um að hvaða glöggur
hagfræðingur sem er hefði getað bent
Asgeiri á þennan misskilning fyrir birt-
ingu ritdómsins og þannig forðað frá
verstu villunum.
Asgeir fullyrðir að skilgreining mín á
samfelldu falli sé „bull“. Bók A. Takay-
ama þykir vera með bestu heimildarrit-
um um þetta efni og nefnist hún Mathe-
matical Economics (1974). Skilgreining
mín á samfelldu falli er staðfest í því riti
(bls. 78 — 79). Asgeir virðist ekki kunna
mikið fyrir sér í stærðfræði. Fyrir hann
er þá kafli 4.6 í bók R. G. D. Allen,
Mathematical Analysis for Economists
(1972) aðgengilegur. En fyrir lesendur
Frjálshyggjunnar almennt vil ég geta
þess að deiluefni þetta snýst um það
hvort skilgreining mín í neðanmálsgrein
sé rétt eða röng. Ofangreind heimildar-
rit staðfesta skilgreiningu mína, en hún
var höfð í neðanmálsgrein vegna þess að
hún breytti ekki miklu um meginefni
umræðunnar þar. Enn sannast það á
Asgeiri að vinnubrögð hans eru hvorki
vönduð né málefnaleg og við hinir höf-
um „engin efni á að fara í feluleik“ með
þá staðreynd.
Asgeir gerir lýsinguna á markaðs-
hegðuninni og tilurð jafnvægis nokkuð
lifandi, ef frá er skilinn allur ruglingur-
inn með hugtökin Paretohagkvæmni,
Paretokjörstaða, lögmál Says og lögmál
Walras. En Asgeir virðist standa í þeirri
trú, að nýklassísk hagfræði sé hagfræði
ójafnvægis. Þetta vekur grunsemd um
494