Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 65
Gagnrýni á gagnrýnina rýninni hnignar. Gætið að hvernig dagblöðin eru uppfull af miðstéttarlegu spjalli, skrifuðu fyrir fólk sem virðist lifa í eilífu kaffihléi, þar sem vaðallinn freyðir. Þegar kreppa ríkir í hinum andlega heimi hættir mannsandanum til að sjá lífið í einstökum þáttum þess, mannsandinn einhæfir sig. Þetta er áberandi í heimspekiiðkun nútímans. Heimspekingar þykjast sjá alla eðlisþætti manns- ins í kannski tungunni og notkun hennar, aðrir sjá allt lífið í hegðun mannsins, aðrir í stjórnmálum, eða því flokksræði sem ríkir í heiminum í stað lýðræðis. Heimspekin sér ekki lengur lífið í hinum stóru heildum, hún sér ekki manninn frá öllum hliðum. Hin miklu kerfi eru liðin undir lok. Sama er að segja um listaverkin. Reynt er að telja okkur trú um að maðurinn sé orðinn svo yfirgripsmikill að enginn mannshugur komist yfir alhliða þekkingu á honum, þess vegna beri að líta á hann frá einni hlið í senn og það með vísindalegu hugarfari. En maðurinn er og verður lifandi höggmynd sem hægt er að ganga í kringum og skoða í krók og kring. Ætti ég mér ósk bæði ég gagnrýnandann að reyna að útskýra það hvernig raunveruleikinn er spunninn úr hugarflugi og hugarflugið fléttað úr raun- veruleikanum. Er fegurð verksins og listrænt handbragð sprottið úr þeim ljótleika sem efniviðurinn er unninn úr, ljótleikanum, hinu mikla viðfangsefni nútímalistarinnar sem birtist á sviðinu þegar slaknaði á tökum hinna latínulærðu skólamanna á listunum og listamenn fóru að gefa gaum að þjóðlegum frásögum, ævintýrum og furðusögum lýðsins? Hin klassíska heiðríkja er þar hvergi. I sögum alþýðunnar er aðeins grimmd og hryllingur. í stað heiðríkjunnar barst inn í listina þoka og dumbungur sálarinnar, hið grugguga loft kenndanna. Ljótleikinn er jafnvel meira áberandi núna en í miðaldalistinni, þegar þótti skylt að benda óvægið á ljótleika líkamans, svo athygli mannsins drægist ekki frá fegurð guðs, og bar manninum að leiða trúna inn í leynihólf sálarinnar, svo guð gæti dvalið þar í honum þrátt fyrir ljóta umgerð líkamans. Hví er ýmislegt skylt með miðöldum og samtíman- um, eða frá því kúbisminn reis upp gegn líkamanum og sýndi ljótleika hans frá öllum hliðum í málverkinu? Eitt fyrirbrigði er algengt í samtímalistinni: listaverkið er spunnið af fingrum fram en í senn gagnrýnið á sjálft sig. Listaverkið snýst af heift gegn eigin lífi. Sjálfseyðileggingarhvöt er ein af frumhvötum nútímalistarinnar. I legi hennar liggja saman sköpun og dauði. Skáldsagan nálgast það að vera ritgerð, í henni felst gagnrýni á hana sjálfa. Er þá nokkur þörf fyrir gagnrýnendur ef listamennirnir gerast eigin gagnrýnendur um leið og þeir skapa verk sín? Hættir gagnrýnin þá ekki að vera fylginautur listanna og kýs sjálfstæða hegðun? Fram á síðustu tíma hefur helsta hlutverk gagnrýnandans verið að 559
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.