Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Side 126

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Side 126
Tímarit Máls og menningar lætur ljóðið lýsa því hvernig bernsku- árin sækja að honum, koma veltandi til hans í líki grettins og kramparauðs barnshöfuðs sem gefur til kynna af- skræmingu og óhugnað. Hann greinir slóð sína í föli fortíðarinnar, þar er eng- inn annar á ferð með honum, hann er aleinn og án liðsinnis á forvitnisferð sinni um glæpi stundanna. Tjáning ljóðsins á háskalegum ein- manaleika þessa barnshöfuðs á vel við uppvaxtarsögu Jakobs Jóhannessonar í bókunum tveim. Rauði þráðurinn í þeim er varnarleysi Jakobs, hvað hann er alveg óvarinn þar sem hann fer um með undrun sína þrútna, eins og líka segir í ljóðinu. Hann kynnist aragrúa af fólki, börnum, unglingum, fullorðnum og gamalmennum, fæstir standa lengi við í lífi hans, og meðal þess er fólk af öllu tagi, afskræmilegt fólk með sjúkt hugar- far, englar í mannsmynd og allt þar á milli. En enginn hjálpar Jakobi að grynna í þessu fólki, hann er opinn og óvarinn fyrir öllum áhrifum. Ef til vill gerir einmitt þetta atriði meginmun á uppeldi lágstéttarbarna og miðstéttarbarna sem við vitum miklu meira um úr skáldverkum. Miðstéttar- börn eru varin í sífellu, hamin, vernduð, alin upp. Lágstéttarbörnin, að minnsta kosti börn óstéttvísrar alþýðu og utan- garðsfólks, eru látin eiga sig, óuppalin. Hvort tveggja hefur sína kosti og lesti. Það er ekki bara eðlisbundið siðleysi mannskepnunnar sem er hamið hjá mið- stéttarbörnum, oftar en ekki er ímynd- unarafl þeirra bælt um leið, þrútin undr- un þeirra kæfð. Undrun og hugmynda- flug fá hins vegar oft að leika lausum hala hjá lágstéttarbörnum, eins og sjá má í Kalstjörnunni, en þó verða þessir eðlis- þættir alltof sjaldan skapandi vegna skorts á leiðbeiningu. Börnin fá enga aðstoð við að vinna úr öllum þeim aragrúa áhrifa sem þau verða fyrir. Þau þyrstir í hugmyndir, innrætingu sem miðast við þeirra eigin kjör og lífsbaráttu en fá aðeins dreggjarnar af hugmyndum kapítalismans um rétt hins sterka og frelsi einstaklingsins. Eins og hvað eftir annað má sjá í frásögn sögu- manns af fólki sem Jakob kynnist á hlykkjóttri vegferð um fátækrahverfi Reykjavíkur nýta unglingar sér þessar hugmyndir fyrst og fremst til að réttlæta pyntingar á sínum líkum og glæpa- starfsemi á frumstigi. Jakob Sjálfur lifir Jakob, aðalpersóna bókanna, óendanlegu ríku lífi, hið ytra sem hið innra, þrátt fyrir örbirgð sína. Sköpun persónu hans frá fæðingu til fermingar verður með samspili andstæðna, líf hans er sífelldum breytingum undirorpið þótt sú sé meginregla að hver vottur af birtu gegni því aðalhlutverki að dýpka skuggana. Innra með honum takast líka á gagnvirkar kenndir til þess breyska fólks sem lifir með honum, föður hans, stjúpu, fólks sem sest upp á heimilinu eða býr umhverfis, hann bæði elskar það og hatar. Jakob verður smám saman marghliða persóna sem ber í sér frjó- magn til skapandi starfs, lítt bældur framan af enda alinn upp við takmarka- lítið frelsi — og háværar skammir full- orðinna, ef eitthvað ber út af, sem hefta ekki ímyndunaraflið, beina því bara í nýja farvegi. Hann kemst snemma að því að fjölskylda hans er fátæk, en það er svo margt við að vera og margir aðrir sem eru jafnvel verr staddir, að hann hefur engan tíma til að velta því lengi fyrir sér. Það sem hann skortir er hand- leiðsla, hana fær hann eingöngu hjá móður sinni og býr raunar ótrúlega 620
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.