Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Page 16
Tímarit Máls og menningar samningar doktorsritgerðar og kennslu að gefa út Olafs sögu, en Jón hafði drjúgum fleiri járn í eldinum, vann að rannsóknum og birti útgáfur og ritgerðir. Dönsk ríkisframlög vóru á þessum árum lítil sem engin til prentunar rita á sviði íslenskra fræða, en ofurlitlar vaxtatekjur fengust þá enn af dánargjöf Arna Magnússonar, sem sérstök stjórnarnefnd réð fyrir. I þá nefnd var Jón kjörinn 1936. A vegum Arnanefndar komu út íslenzk mibaldakvxbi, sem Jón Helgason bjó til prentunar, tvö bindi væn 1936 og 1938. Samfund til udgivelse af gammel nordisk litteratur, stofnað 1879, var alla stund fátækt félag, enda nefnt Magra félagið af löndum, en var þó einna drýgst um langt skeið við að koma á prent vönduðum útgáfum gamalla íslenskra rita. A vegum þess birti Jón fyrstu handritaútgáfu sína, Heibreks sögu 1924 og síðar Hákonar sögu ívarssonar (ásamt Jakobi Benediktssyni) 1952 og Hándskriftet AM 445 c, I, 4to 1956. Formaður Magra félagsins var Jón um áratugi og hafði umsjón með útgáfum annara manna á vegum þess. Eitt útgáfufélagið enn var Hið íslenska fræðafélag í Kaupmannahöfn, stofnað 1912 eftir heimflutning Hafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags. Forseti þessa félags var Jón Helgason frá 1934 og til dauðadags. 1922 hóf þetta félag útgáfu ritaflokksins ’Safn Fræðafélagsins um Island og Islendinga'. I þeim flokki birtist doktorsritgerð Jóns 1926, Hrappseyjarprentsmibja 1928, Málib á Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar 1929, Ur bréfabókum Brynjólfs biskups Sveinssonar 1942 og Bjarni Thorarensen, Bréf (fyrra bindi) 1943. Auk þess lét Fræðafélagið prenta útgáfu Jóns á ljóðmælum Bjarna Thorarensen 1935. A bókasöfnunarárunum eftir stríð seldist mest af bókaleifum Fræðafélagsins, þannig að félagið komst í ofurlitlar álnir og var um nokkurra ára skeið öflugasta útgáfufélagið á sviði íslenskra fræða í Höfn. Jón hóf þá útgáfu nýs bókaflokks, ’lslenzkra rita síðari alda', og komu út í þeim flokki níu rit alls, flest á árunum 1948—55. í>au rit sem Jón bjó sjálfur til prentunar vóru Ármanns rímur ... og Ármanns þáttur 1948, Ludvig Holberg: Nikulás Klím, íslenzk þýbing eftir Jón Ólafsson úr Grunnavík 1948, Móbars rímur og Móbars þáttur 1950 og Gamall kvebskapur 1979. Auk þess ritaði hann innganga að ljósprentunum tveimur, Kvæbabók úr Vigur 1955 og Kvœbabók séra Gissurar Sveinssonar 1960. Allt vóru þetta vísindalegar útgáfur áður óprentaðra rita að mestu, en textinn þó prentaður með venjulegri nútímastafsetningu til þess að gera hann aðgengilegri íslenskum lesendum. Ekki var þó við bókunum ginið, og þessi útgáfa datt brátt niður aftur, enda breyttust allar aðstæður við útgáfustarfsemi í Kaupmannahöfn þegar leið á sjötta áratuginn, eins og bráðlega verður vikið að. Aður skal þó drepið á ljósprentanir íslenskra miðaldahandrita í Kaupmanna- höfn, þar sem Jón Helgason kom einnig mjög við sögu, eins og vænta mátti. Ejnar Munksgaard byrjaði á útgáfu á flokki ljósprentana íslenskra miðalda- handrita, Corpus Codicum Islandicorum Medii Aevi. Ut komu tuttugu bindi í þeim flokki 1930—56, og ritaði Jón Helgason inngang að þremur þeirra. í öðrum flokki ljósprentana frá Munksgaards forlag, Manuscripta Islandica, X 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.