Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Qupperneq 51

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Qupperneq 51
Ekkiað eins d jólunum dugað — ég efast um það — þá er það sannfæring mín að það hafi verið kynslóð feðra okkar. Þótt hvorki skorti lausafé né nauðsynleg sambönd liðu enn fjórir dagar uns búnaðurinn hafði verið endurnýj- aður. A meðan öskraði frænka mín án afláts. Símskeytum til aðal- stöðva þýskrar leikfangagerðar, sem voru í uppbyggingu, var þeytt um ljósvakann, hraðsamtöl áttu sér stað og kófsveittir ungir póstsendlar komu að næturlagi með hraðsendingar. Með mútum fékkst með skömmum fyrirvara innflutningsleyfi frá Tékkóslóvakíu. I fjölskylduannál föðurbróður míns mun skráð að þessa daga hafi verið brúkað óvenjumikið af kaffi, sígarettum og taugum. A meðan féll frænka mín saman, kringlótt andlit hennar fékk harða og hvassa drætti, svipur mildi vék fyrir ósveigjanlegum strangleika. Hún borð- aði ekki, drakk ekki, öskraði stöðugt. Tvær hjúkrunarkonur gættu hennar og daglega varð að auka Luminalskammtinn. Franz sagði okkur að sjúkleg spenna hefði ríkt í allri fjölskyldunni þar til 12. febrúar að loksins var búið að endurnýja jólatrésskrautið að fullu. Kveikt var á kertunum, gluggatjöldin dregin fyrir, frænka mín flutt úr sjúkrastofunni og frá þeim sem safnast höfðu saman heyrðist aðeins snökt eða fliss. Svipur frænku mildaðist strax við skin kertanna og þegar þau höfðu náð réttu hitastigi og dvergarnir hófu að hamra sem óðir og engillinn hvíslaði: „Friður, friður“, færðist undur- fagurt bros yfir andlit hennar. Skömmu síðar hóf öll fjölskyldan að syngja: „I Betlehem er . . .“ Til þess að fullkomna myndina hafði prestinum, sem var vanur að eyða aðfangadagskvöldi hjá Franz föðurbróður, verið boðið. Hann brosti líka. Honum hafði einnig létt og hann tók undir. Hið næma hjarta frænda míns hafði leyst þann vanda sem engri tilraun, engri djúpsálarfræðilegri álitsgerð, engri sérfræðilegri leit að gleymdum áföllum hafði tekist. Jólatrésmeðferð þessa hjartagóða manns bjargaði málunum. Frænku minni var rórra og þvínær — að því er við vonuðumst til — batnað. Eftir að nokkrir sálmar höfðu verið sungnir og nokkrir kökudiskar tæmdir voru menn orðnir þreyttir og drógu sig í hlé og sjá; frænka mín var sofnuð án nokkurra róandi lyfja. Báðum hjúkrunarkonunum var sagt upp, læknarnir ypptu öxlum, allt virtist í lagi. Frænka mín nærðist á ný, drakk og varð aftur ljúf og elskuleg. En næsta kvöld þegar tók að húma, sat föðurbróðir minn við tréð hjá konu sinni og las í blaði. Þá snart hún 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.