Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Qupperneq 135

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Qupperneq 135
Samband lesanda og höfundar kallar hann að vísu „hálflífs banvæn faðmlög“ og lesandinn nemur rödd skáldsins eins og úr hátalara „á förnum vegi“. Samt sem áður er „vonin alltaf vonin“ og bókina endar Þórarinn á þessum orðum: Lifum þó enn um sinn í þeirri von að dag einn ljósti oss eins og furða tilfinningin hingað var ég kominn Þessi hugsun, þessi von, er það sem einkennir ljóðabókina Ydd. Þetta er nýr tónn í ljóðum Þórarins Eldjárns. Ljóð- línur úr Erindum 1979 rifjast upp: „Æ fastar vefst mér íslensk tunga um tönn / tilfinningin grefur sig í fönn“. Þetta er vel sagt, en lýsir vanda skáldsins, jafnvel kreppu. I Yddi er skáldið nálægara í ljóðum sínum en áður. I fyrri ljóðabók- um Þórarins var fjöldinn allur af persón- um og sagðar af þeim heilu sögurnar. Hér er skáldið ekki að yrkja um eitt- hvert fólk úti í bæ; ljóðin virðast í beinni tengslum við eigin reynslu skáldsins. Adeilukvæði eru ekki lengur yfirgnæf- andi og dár og spé ekki eins áberandi og oft áður. Enda eru einkunnarorð bókar- innar þessi: „A poem should not be mean“. Þórarinn Eldjárn hefur í þessari bók tekið upp nýtt form í ljóðum sínum og reynst hafa gott og öruggt vald á því. Undir þessu formi hefur inntak ljóða hans líka breyst. Áhersla er lögð á skynjun augnabliksins, að túlka ákveðna stemningu, lýsa hugsun eða minningu. Skáldið leggur sig fram um að snerta, vekja og hrífa lesandann á nýjan hátt — og tekst það. Margrét Eggertsdóttir Umsagnir um bakur HVAÐ GERÐIST? Það er ekki langt síðan menn kepptust við að úrskurða smásöguna á líkbörurn- ar, ef ekki rithöfundar þá lesendur og útgefendur. En nú er engu líkara en sjúklingurinn sé upprisinn og hinn bratt- asti. Margir ungir höfundar hafa lagt þetta form sérstaklega fyrir sig, og við- tökur lesenda virðast hafa verið uppörv- andi. Það smásagnasafn sem hér verður rætt um er gleðilegt dæmi þessa. Fríða Á. Sigurðardóttir kvaddi sér fyrst hljóðs með smásagnasafni 1980 (og afsakaði sig um leið með nafninu: Þetta er ekkert alvarlegt), og hér tekur hún upp þráðinn aftur, með safninu Vió gluggann (Skuggsjá, 1984). Þessum nýju smásögum svipar að ýmsu leyti til sagna fyrri bókarinnar. Sögupersónur þeirra eru sem fyrr eink- um nútíma íslendingar á mölinni og lifa þar engu sældarlífi. Oftar en ekki er lýst fólki sem lifir einhvern veginn einangrað frá öðrum, í umhverfi þar sem lítil sam- staða fyrirfinnst og hver er sjálfum sér næstur. í samræmi við það eru sögurnar einatt einskorðaðar við hugskot einnar manneskju, tjá þá mynd sem hún gerir sér af tiltekinni atburðarás. Fyrsta sagan, Ópið, segir frá konu sem er að vaska upp meðan maður henn- ar les í blaði inni í stofu og dóttirin spilar ærandi rokkmúsík í sínu herbergi. Spennan magnast innra með konunni, og allt í einu heyrir hún nístandi óp, að hún heldur úr næstu íbúð. Hvorugt hinna hefur heyrt neitt — að eigin sögn — og maðurinn er ófáanlegur að fara fram og ganga úr skugga um hvort eitt- hvað hafi komið fyrir. Inn í samtalið fléttast lýsing heimilislífs eins og gengur og gerist, þar sem húsbóndinn þrælar sér út myrkranna á milli, en konan sinnir 125
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.