Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1997, Side 84

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1997, Side 84
GUÐBERGUR BERGSSON léttgeggjaðir á afsláttarlyfjum, af sannfæringarkrafti sem nálgast trúarof- stæki landbúnaðarráðherra sem er víxlaður í hugsun hvað varðar hlutverk sitt. Það er einhvern veginn þannig að sjaldan fer saman hófstillt viðhorf til manns og náttúru, síst í okkar heimshluta, þar sem eingyðistrú og eðli skoðanakanna félagsvísindastofnana ríkir í gegnum síma. í vísindum þeirra má hinn rannsakaði aðeins segja „já“ eða „nei“, þ.e. gefa afdráttarlaust svar. Þó er honum líka frjálst að svara ekki, að segja hvorki „já“ né „nei“, hafa enga hugmynd. En hann má ekki hafa aðra skoðun í skoðanakönnun en þá sem einkennist af tvenns konar vali á vissu. Félagsvísindin eru byggð á þessu í heimi þar sem ríkir „annað hvort eða“. Maður er annað hvort með eða á móti. Ef hugmyndirnar eru einhvers staðar þar á milli er hann talinn vera annað hvort skoðanalaus eða þá hættulegur úrkynjaður ræfill sem getur átt það á samviskunni að hafa komið til valda, t.d. í stjórnmálum, erkióvini sem gæti eytt manninum og náttúrunni með neikvæðri sprengju, í staðinn fyrir að nota jákvæða og eyða hinum neikvæðu og ranglátu með sprengjunni sem á að vera lífsnauðsynleg fyrir mannkynið. Nú hugsa menn ekki lengur bara um það að bjarga mömmu og pabba og kannski kærustunni um leið, hugsun og bjargráð flestra eru af sömu mælieiningu og mannkynið. Menn vilja ekki taka neitt minna upp í sig en alheiminn, tali þeir á annað borð. Allir vilja vera gæddir alheimsvænni samúð. Á engu heimili er lengur móðir sem sér bara um barnið sitt, í staðinn eru alheimsmömmur úti um allar jarðir í hlutastarfi við að bjarga börnum heimsins. Og við höfum eignast alnetsvæna pabba á heimsmarkaði. Þetta eigum við að þakka þýska skáldinu Goethe sem boðaði samruna manns og náttúru og fann upp orðið heimsbókmenntir án þess að vita hvað það merkir; orðið sem slíkt var vænlegt til að mynda hugsunarlíki við aukna notkun. Á þessari öld hefur maðurinn ekki verið látinn lýsa sér í dýpt híbýla sinna eða trúarinnar á guð handan við heiminn, heldur í því sem kallað er stjórnmál, eða öðru fremur í trúarlega þætti þeirra, þeim atriðum stjórnvisk- unnar þar sem við tökum frumstæða afstöðu, annað hvort með eða á móti í daglegri könnun, ekki á hjörtum og nýrum, eins og segir í kristinni trú, heldur athugun á því hvað kunni að vera í buddunni, þó lifum við oftast á loforðum stjórnmálaflokka eða manna sem eru taldir frelsarar þjóðanna á meðan þeir ríkja en einræðisherrar að falli loknu. Á þessari öld hefur varla nokkur maður hugsað samkvæmt eðli sínu, sjálfstætt í raun og veru, að þeim undanskildum, sem hafa hugsað fyrir sig og allan heiminn um leið. Aðrir hafa hvorki hugsað sem frjáls vitsmunavera né maður sem stendur eða fellur í sínu andlega umhverfi og dvelur þar með sinni náttúrulegu tilfinningu færðri í persónulegt form. 82 TMM 1997:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.