Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1997, Síða 120

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1997, Síða 120
RITDÓMAR þokunni; Ödipus og Hamlet gætu allt eins rekið húsgagnaverslun við Grensás- veginn. Angist Hlyns, sem hann á erfitt með að koma orðum að og á sér hvorki upphaf né niðurstöðu, stafar annars veg- ar af sálrænum klofningi því hann er aldrei allur þar sem hann er séður og hins vegar siðferðilegri mótsögn sem textinn leysir ekki upp. Hlynur getur þrátt íyrir allt sitt tal um úreltan móral ekki gert það upp við sig hvort allt sé leyfilegt og mað- urinn aðeins heitur hlutur á mynd utan úr geimi, eða hvort hann er umfram allt siðferðisvera í miðju „erfðasundi" sem taka verður tillit til ævafornra kristinna hugmynda sem segja að allt þetta góða sé vont fyrir mann. Gömul trúarsannindi íþyngja honum þrátt fyrir viðleitni hans til að leysa þau upp með íroníu og nið- urrifi; vísindamenn hafa ekki leyst hann „úr meyjarhöftum siðapostula“ (223). Sagan grefur ekki undan hugmyndum okkar um hefðbunda byggingu sjálfsver- unnar sem reist er á grunni „fornfálegra11 túlkana og virðast á tíðum á skjön við vandamál okkar frá degi til dags. Mark- mið hennar er miklu frekar að sýna að þær tilheyra tungumáli sem kemur eng- an veginn heim og saman við líf þeirrar kynslóðar sem þekkir MTV-stjörnur betur en postulana, Geenu Davis betur en heilaga Maríu. Þeir sem hafa þörf fyrir að finna þráðinn í þulu Hlyns geta sagt sem svo að hún fjalli öðru fremur um þetta misgengi. Hlyni er fullljóst að eitt- hvað er rotið í Danaveldi og að sú rotnun á sér stað innra með honum sjálfum. Tungumál hans nær hins vegar ekki utan um „gamaldags“ vandamál sem tilheyra Manninum og um leið einhverri „æva- fornri hefð“ nema í einstökum setning- um sem komnar eru frá honum sjálfum og lýsa eins og leiftur í þeirri niðdimmu nótt sem líf hans óneitanlega er: „Ég er ekki það sem ég er heldur það sem ég er orðinn“ (277) - „Fjandinn. Ég verð bara ég. Þó ég sé ömurlegur“ (319) - „Ég fer mér ekki“ (353). Líkt og skáldsögu Guðbergs Bergs- sonar, Tómasi Jónssyni, er 101 Reykjavík beint gegn heilli kynslóð; ekki hinni svokölluðu X-kynslóð heldur síðustu vinyl-kynslóðinni, þeirri sem kenna má við U-2 eða Robin Williams og virkar eins og út úr kú með sína Stray-Cats klippingu þegar upplýsingabyltingin sem hún hélt að væri löngu skollin á skellur loksins á. Það sem heldur þessari kynslóð saman er fátt annað en náms- skrá menntaskólanna, sameiginleg reynsla í biðröðum fýrir utan skemmti- staði og „jú-það-var-ógeðslega-gaman— þarna-svip[urinn]“ (313). Sagan hefur ef til vill ekki gOdi fyrir aðra en þá sem tilheyra þessari kynslóð því hún lýsir harðlæstum heimi, einkennist af þröngu sjónarhorni þeirra sem afskrifa Menn- inguna, fortíðina og landsbyggðina og halda að lífið sé allt saman komið í einu póstnúmeri. Þetta er kynslóð raunveru- leikans en ekki skáldskaparins: „Hvað er ég að pæla? Hvaðan koma þessar setn- ingar? Úr bókum. Aldrei aftur lesa. Bæk- ur eru fyrir andlaust fólk. Andinn kemur sjálfur, bara anda honum að sér. Það eru fleiri hugmyndir í óreyktri sígarettu en fimm bindum af fornaldarsögum“ (89- 90). Þótt við komumst ekki langt með því einu að gefa Hlyni þá siðferðilegu falleinkunn sem hann á vissulega skilið að fá er 101 Reykjavík engu að síður sið- ferðileg skáldsaga. Sagan birtir nýja sjálfsvitund, nýtt lífsform hins nútíma- lega „meinlætamanns“ sem hefur málað sig út í horn fyrir framan sjónvarpsskjá- inn. Hún fer þó aldrei með okkur fram af hengifluginu þótt örlög söguhetjunn- ar virðist í lausu lofti í lok sögunnar effir ferðalag hennar á neðsta farrými nætur; harmleikur einstaklingsins virðist ekki eiga sér aðra orðræðu en þessa á vorri ístru-móðu tíð. Sagan bregst ekki við los- aralegum tengslum sjálfs og heims með því að ganga óreiðunni á vald, sem ætti þó að vera eina lausnin miðað við þá nöturlegu heimsýn sem liggur henni til 118 TMM 1997:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.