Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Blaðsíða 38
KRISTÍN VIÐARSDÚTTIR
prýddi ljósmynd af Vitu kápuna á fyrstu útgáfu bókarinnar. Bókin á þannig
að vissu marki rætur að rekja til persónu og lífs Sackville-West en engu að
síður er Orlando fyrst og fremst nokkurs konar söguleg fantasía þar sem saga
Orlando er rakin í fjórar aldir, fyrst sem karlmanns og síðan sem konu. Þótt
tengslin við Sackville-West geti vakið forvitni um ævi þessarar sérstöku
konu og samband hennar við Woolf skipta þau ekki sköpum fyrir lesanda
bókarinnar því textinn stendur fullkomlega fyrir sínu án vitneskju hans um
þessi tengsl.3 Þau styrkja hins vegar pólitískar vísanir textans því vegna kyn-
ferðis síns stóð Vita frammi fyrir mörgum hindrunum sambærilegum þeim
sem Orlando tekst á við í sínu lífi og geta ef til vill virst vera „hreinn" skáld-
skapur fyrir lesanda bókarinnar í dag.
í upphafi bókar er Orlando unglingspiltur á landareign föður síns. Hann
fer síðan til hirðar Elísabetar drottningar sem tekur ástfóstri við hann og
veitir honum góðar stöður og brautargengi, verður ástfanginn af rússneskri
prinsessu sem síðar svíkur hann, og fer loks sem sendiherra til Konstant-
ínópel þar sem hann verður fyrir þeirri stórkostlegu umbreytingu að vakna
einn daginn sem kona eft ir sjö daga svefn. Eft ir þessa endurfæðingu segir Or-
lando skilið við opinbera stöðu sína (í mörgum skilningi) og dvelur með
sígaunum þar til hún snýr aftur til Englands og kemst þá að því að hún á sér
varla nokkra lagalega tilveru. Dómsmál fer í gang til að skera úr um tilvist
hennar, kyn og erfðarétt og á meðan heldur tíminn áfram að líða án þess að
Orlando eldist að nokkru marki. Hún klæðist ýmist sem kona eða karl og
tekst þannig að halda nokkru ffelsi og getur meðal annars ferðast ein og
ótrufluð og notið ásta kvenna jafnt sem karla.
Orlando er lengst framan af ein(n) og óbundin(n) ef frá eru taldar óljósar
sögusagnir um hjónaband hans og sígaunakonu, en beygir sig loks undir
kröfu Viktoríutímans og finnur sér eiginmann og eignast síðar með honum
son. Woolf lýsir þessu tímabili í sögu Bretlands á mjög myndrænan hátt og
verða aldaskilin í textanum skörpust við upphaf 19. aldar, skömmu áður en
Viktoría tekur við völdum. Hjónaband Orlando er þó fyrst og fremst nauð-
syn, þar sem hún hefur mun meiri áhuga á að ná sér í elskhuga en eiginmann,
og í samræmi við það er eiginmaðurinn að mestu fjarverandi við siglingar og
síendurtekinn sjávarháska við Hornhöfða. Með hjónabandinu tekst Or-
lando að vissu marki að leika á samfélagslegar kröfur tímans enda er hún
sjálf ekki alveg viss um að hafa uppfyllt þær og veltir því fyrir sér hvort hjóna-
band hennar sé í raun gott og gilt:
She was married, true; but if one’s husband was always sailing round
Cape Horn, was it marriage? If one liked him, was it marriage? If one
36
www.mm.is
TMM 1999:3