Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Blaðsíða 58
SHIRLEYJACKSON
„Jæja,“ sagði Summers, „ég býst við að allir séu komnir. Komst
Warner gamli?“
„Hér,“ heyrðist sagt og Summers kinkaði kolli.
Skyndilega sló þögn á hópinn þegar Summers ræskti sig og leit á list-
ann. „Eru allir tilbúnir?“ kallaði hann. „Nú mun ég lesa nöfnin - fjöl-
skyldufeður fyrst - og karlmennirnir koma og taka miða úr kassanum.
Haldið miðanum samanbrotnum í hendinni án þess að líta á hann þar
til allir eru búnir að draga. Skilið?“
Fólkið hafði gert þetta svo oft að það hlustaði bara með öðru eyranu
á fyrirmælin; flestir voru hljóðir, sleiktu varirnar, horfðu ekki í kring-
um sig. Þá rétti Summers upp aðra höndina og sagði: „Adams.“ Maður
nokkur kom út úr hópnum og gekk fram. „Sæll, Steve,“ sagði Sum-
mers og Adams sagði: „Sæll, Joe.“ Þeir glottu hvor til annars alvarlega
og órólega. Síðan seildist Adams inn í svarta kassann og tók saman-
brotinn miða. Hann hélt fast í hornið á honum um leið og hann sneri
sér við og flýtti sér aftur á sinn stað í hópnum þar sem hann stóð ör-
stutt frá fjölskyldu sinni, leit ekki á höndina.
„Allen,“ sagði Summes, „Anderson ... Bentham.“
„Það er eins og það líði enginn tími milli hlutaveltna lengur,“ sagði
frú Delacroix við frú Graves í öftustu röð. „Það er eins og við höfum
rétt verið að ljúka þeirri síðustu af í vikunni sem leið.“
„Tíminn flýgur svo sannarlega,“ sagði frú Graves.
„Clark ... Delacroix.“
„Þarna fer bóndinn minn,“ sagði frú Delacroix. Hún hélt niðri í sér
andanum meðan maður hennar gekk fram.
„Dunbar,“ sagði Summers og frú Dunbar gekk ákveðin að kassan-
um meðan ein af konunum sagði: „Áfram, Janey,“ og önnur sagði:
„Sko hána.“
„Við erum næst,“ sagði frú Graves. Hún fylgdist með þegar Graves
gekk fram fyrir kassann, heilsaði Summers þunglega og valdi pappírs-
miða úr kassanum. Þegar hér var komið voru menn um allan hópinn
með litla samanbrotna miðana og veltu þeim órólega í stórgerðum
höndunum. Frú Dunbar og synir hennar tveir stóðu saman, frú Dun-
bar hélt á pappírsmiðanum.
„Harburt... Hutchinson.“
56
www.mm.is
TMM 1999:3