Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Blaðsíða 54
Shirley Jackson
Hlutaveltan
Morgunninn 27. júní var heiður og sólbjartur með ferskum hita há-
sumardags; blómin sprungu út af ákafa og grasið var djúpgrænt. Fólk-
ið í þorpinu fór að safnast saman á torginu milli pósthússins og
bankans um klukkan tíu; í sumum bæjum var svo margt fólk að hluta-
veltan tók tvo daga og varð að hefjast 26. júní en í þessu þorpi, þar sem
aðeins bjuggu um þrjú hundruð manns, tók öll hlutaveltan minna en
tvo tíma svo að hún gat byrjað klukkan tíu um morguninn og samt
verið búin nógu snemma til að þorpsbúar kæmust heim í hádegisverð.
Börnin komu saman fyrst, að sjálfsögðu. Skólanum var nýlokið,
sumarfríið rétt að byrja og hið nýfengna frelsi gerði flest þeirra eirðar-
laus; þau söfnuðust hljóðlega saman um stund áður en þau skelltu sér í
háværan leik og þau töluðu enn um skólastofuna og kennarann, um
bækur og áminningar. Bobby Martin hafði þegar troðið vasa sína fulla
af steinum og hinir strákarnir fóru brátt að dæmi hans og völdu slétt-
ustu og ávölustu steinana; að lokum settu Bobby og Harry Jones og
Dickie Delacroix - þorpsbúar báru þetta nafn fram „Dellacroj“ - fullt
af steinum saman í hrúgu í einu horninu á torginu og sátu vörð um
hrúguna þegar hinir strákarnir reyndu að stela úr henni. Stúlkurnar
stóðu afsíðis, töluðu sín á milli og gutu augunum á strákana, og
minnstu börnin veltust um í göturykinu eða héldu fast í hendurnar á
eldri systkinum sínum.
Brátt fóru karlmennirnir að safnast saman, virtu fýrir sér börnin sín
og töluðu um ræktun og rigningu, dráttarvélar og skatta. Þeir stóðu
saman, þarri steinahrúgunni í horninu, og göntuðust í hálfum hljóð-
um og þeir brostu frekar en hlógu. Konurnar, sem voru í upplituðum
morgunkjólum og treyjum, komu rétt á eftir karlmönnunum. Þær
heilsuðust og skiptust á slúðri á leiðinni til eiginmanna sinna. Brátt
fóru konurnar, þar sem þær stóðu hjá mönnum sínum, að kalla á
börnin sín en börnin komu nauðug og það þurfti að kalla á þau fjórum
52
www.mm.is
TMM 1999:3