Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 10
10
GLÓÐAFEYKIR
Helztu fjárfestingar hafa verið þessar:
Bygging sláturhúss með búnaði 96,5 millj kr., viðbót við verzlun-
arhús í Varmahlíð 2,7 millj., keyptar tvær íbúðir við Hólaveg á
Sauðárkróki 5,1 millj., vélar í Mjólkursamlag 5,1 millj., stór flutn-
ingabifreið 5,0 millj., ýmis minniháttar fjárfesting í vélum, tækjum
og innréttingum 1,9 millj kr. Alls var því varið til fjárfestinga á
árinu 116,3 millj. kr., og hafði þessi fjárfesting hækkað frá árinu
1972 um 92, 4 millj kr.
Eignir félagsins.
Fasteignir og lóðir K.S. voru bókfærðar í árslok á 181,5 millj. kr.
og höfðu hækkað um 78 millj. frá árinu áður. Vörubirgðir eru bók-
færðar á 76,6 rnillj. kr., hækkun 29,7 millj. frá árinu 1972, eða 61%.
Vélar, tæki og innréttingar eru bókfærðar á 48,5 millj. kr., hækkun
30 millj. röskar frá fyrra ári. Allar þessar eignir eru afskrifaðar eins
og lög leyfa. Eigið fé félagsins var um áramótin 146,6 millj. kr., og
hafði hækkað um 11 millj. frá fyrra ári.
Rekstrarafkoman 1973.
Allur rekstrarkostnaður óx stórlega á síðasta ári, en þrátt fyrir það
varð umsetning tiltölulega meiri.
Heildarafskriftir, sem bæði eru færðar á sérreikninga og fyrn-
ingarsjóð fasteigna, voru alls á árinu tæpar 22 millj. kr., og hafa
hækkað um tæpar 9 millj. fiá 1972.
Reikningsuppgjör ársins sýnir rekstrarhagnað að upphæð 6,4
millj. kr., og kemur sá hagnaður til ráðstöfunar fyrir aðalfund fé-
lagsins. Verður því hægt að endurgreiða nokkuð til félagsmanna í
hlutfalli við viðskipti þeirra við félagið.
Stærstu gjaldaliðir auk launa og launakostnaðar, er ég hef áður
nefnt, eru þessir:
Viðhaldskostnaður fasteigna 5,1 millj. kr., viðhaldskostnaður véla
og áhalda 5,7 millj., eða 10,8 millj. kr. alls. Tryggingaiðgjöld 3,3
millj., hækkun 32% frá fyrra ári. Raforkukaup 4,7 millj. kr., hækk-
un 31% frá fyrra ári.