Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 6
6
GLOÐAFEYKIR
smjör 154,5 tn., ostur 45% 366,0 tn., óðalsostur 70,0 tn., 30% ostur
106,0 tn. og kasein 32,8 tonn. A árinu 1973 flutti Mjólkursamlagið
út um 340 tonn af ostum til fjögurra landa: Bandaríkjanna, Svíþjóð-
ar, Rússlands og Tékkóslóvakíu, en auk þess var allt kaseinið flntt
til Danmerkur.
Heildargreiðslur til framleiðenda á árinu 1973 námu 197,2 rnillj.
kr. og höfðn hækkað um 50,7 millj. frá fyrra ári. Endanlegt verð til
bænda á ltr. af innlagðri mjólk 1973 nam kr. 24,53, sem er 15 aurum
yfir staðargrundvöll, en auk þess var uppbótin vöxtnð á miðju ári
1973.
Jón Guðmundsson, Óslandi, var endurkjörinn í samlagsráð til
3ja ára, en aðrir í ráðinu eru Sigurður Sigurðsson, Brúnastöðum,
Ólafur Þórarinsson, Flugumýrarhvammi, Sólberg Þorsteinssön,
samlagsstjóri og Helgi Rafn Traustason, kaupfélagsstjóri.
H. R. Tr.
AÐALFUNDUR KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA 1973
Fundurinn var haldinn á Sauðárkróki 31. maí og 1. júní. Form.
félagsins, Gísli Magnússon, setti fundinn og bauð fundarmenn vel-
komna. Minnti á, að Kaupfél. Skagf. væri 85 ára um þessar mundir
(23. apríl). Væri þetta í fyrsta sinn, að aðalfundur væri haldinn í eig-
in húsakynnum félagsins, hinum nýja sal úti á Eyrinni, en þar eru
skilyrði öll hin beztu, bæði til fundahalda og veiting-a.
Form. minntist Tobíasar Sigurjónssonar, fyrrrv. formanns K.S.,
með svofelldum orðum:
„Nú hefur eftir sig orðið í Kaupfélagi Skagfirðinga. Fallinn er í
valinn sá maður, sem oftar hafði sett aðalfund félagsins en nokkur
annar, sá maður, sem gegnt hafði formennsku í stjórn Kaupfélags
Skagfirðinga lengur en nokkur maður annar í 85 ára sögu félags-
ins .
Tobías Sigurjónsson, bóndi í Geldingaholti, var fæddur 10. okt.
1897. Hann lézt að heimili sínu þ. 23. ágúst 1973. Tobías var kosinn
í stjórn Kaupfél. Skagf. árið 1937 og æ síðan, en hafði áður verið
deildarstjóri Seyludeildar K.S. um 10 ára skeið. Formaður kaupfé-
lagsstjórnar var hann frá vordögnm 1938 óslitið til æviloka, eða
hálfan fjórða áratug.