Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 66
66
GLÖÐAFEYKIR
annað utan til frekara náms: — Til Ensflands o° Skotlands 1921, til
Norðurlanda 1927; stundaði framhaldsnám í búvísindum og garð-
yrkju við háskólana í Hamborg og Frankfurt am Main 1928—1930.
Má hiklaust fullyi'ða, að hann hafi verið
einn í hópi hinna lærðustu íslendinga í bú-
vísindum um sína daga. Sumurin 1923 og
1924 vann Vigfús að mælingum við Flóa-
áveituna. Var trúnaðarmaður Búnaðarfél.
ísl. í Húnaþingi 1925 og í Hegranesþingi
1926—1940. Hann keypti nýbýlið Varma-
hlíð við Reykjarhól skömmu eftri 1930 og
rak þar mikla garðrækt um nokkurra ára
skeið; reisti þar og veitingaskála.
Vigfús var skipaður kennari við Bænda-
skólann á Hólum árið 1921 og gegndi því
embætti til sjötugsaldurs 1963. Hann rniðl-
aði nemendum miklum fróðleik, enda fjölvís og ágætlega menntað-
ur. Þó mun hann meir hafa hneigzt til vísindaiðkana en kennslu,
og naut sín því naumast til hlítar í kennarastóli, var allra manna
mildastur og hafði eigi alltaf nógu traust tök á nemendum; er þar
og stundum vandsiglt milli skers og báru. En víst er um það, að allir
báru nemendur tli hans hlýjan hug, enda eigi annað hægt, þvílíkur
öðlingsmaður, sem hann var. Eftir að Vigfús lét af embætti fluttist
hann til Reykjavíkur og dvaldist þar síðustu árin, þrotinn mjög að
heilsu.
Árið 1935 kvæntist Vigfús Elínu Helgu Helgadóttur bónda á Núp-
urn í Fljótshverfi, Bjarnasonar. Er hún afkomandi síra Jóns Stein-
grímssonar, mikil ágætiskona. Þau eignuðust 8 börn. Son misstu þau
ungan, en 7 eru á lífi, þegar þetta er ritað: Guðmundur Hákon,
starfsmaður hjá Rafmagnsveit. rík., Reykjavík, Agnar Helgi, starfsm.
hjá B.S.S., til heimilis á Hólum, Ása, hjá móður sinni í Rvík. (nú
látin), Hörður Birgir, kennari og bókhaldari á Hólum, Þórhildur,
húsfr. í Grænumýri í Jökulsárhlíð, Agnes og Baldur, bæði hjá móð-
ur sinni.
Vigfús Helgason var lágvaxinn en þrekinn og þéttur á velli,
burðamaður gildur. Svipurinn hýr og góðlegur, maðurinn allur
drengilegur, prúður, glaður og geðfelldur í viðmóti. Hann var ágæt-
lega gefinn og fjölmenntaður, málamaður mikill og stærðfræðingur.
Hann var félagshyggjumaður, hugsaði mikið og las. Hann var nátt-
úrubarn, viðkvæmur í lund, einlægur og hrekklaus, ætlaði engum
Vigfús Helgason