Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 23
GLÖÐAFEYKIR
23
Yona að Hólar eflist á alla grein
Viðtal við Friðbjörn Traustason.
Skagafjörður er ýmsum héruðum auðugri af merkum sögustöðum,
enda var hann löngum á liðnum öldum vettvangur mikilla og ör-
lagaríkra atburða. Naumast leikur á tveim tungum að hæst af þess-
um sögustöðum beri Hóla í
Hjaltadal. Voru þeir líka í alda-
raðir annar af tveimur raunveru-
legum höfuðstöðum landsins
alls. En þótt hlutur og staða
Hóla í íslandssögunni breytist
ekki og þótt Skagfirðingar muni
trúlega enn um langan aldur
fara „heirn til Hóla“ hefur þó
staðurinn sjálfur tekið miklum
stakkaskiptum í tíð núlifandi
manna og eflaust meiri en á
mörgum öldum áður. Frá því að
ég leit Hóla fyrst hefur orðið þar
mikil bylting í ræktun og bygg-
ingum, enda verið búið þar
höfðinglega, svo sem hæfir.
Eitt er það þó á Hólum, sem
sáralítið hefur breytzt í mínu
minni, og það er hann Friðbjörn.
Þótt árin, sem hann hefur lagt að baki, séu nú æði mörg orðin, sýn-
ist mér hann undralítið hafa breytzt í útliti, — og ég tala nú ekki um
að innri gerð. Það er eins og spjótalög ellinnar hafi hrokkið af þeirri
brynju karlmennsku og glaðværðar, sem hann hefur klæðzt, ekki fyr-
ir fordildarsakir, heldur af því að hún er honum ásköpuð og eðlis-
gróin.
Og nú hefur svo ráðist, að ég fari á fjörurnar við Friðbjörn, fyrir
Glóðafeyki. En á þess að vísu von, að hann reynist fremur tregur
Friðbjörn Traustason.