Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 20
20
GLÓÐAFEYKIR
Vísnaþáttur
(Þátturinn verður með nokkuð öðrum hætti nú en áður. Kernur
þar helzt til, að mér bárust færri stökur en ég hafði vænzt frá þeim
hagyrðingnum, sem ég að þessu sinni hafði sérstaklega augastað á.
G. M.).
Þeir háðu blaðadeilur, Björn oddviti Egilsson á Sveinsstöðum og
Angantýr kennari Hjálmarsson (bónda á Þorljótsstöðum í Vesturdal
og síðar í Hólsgerði í Eyjafirði), um eignarhald á fremsta hluta
Austurdals í Skagafirði, austan jökulsár, og Nýjabæjaröræfi. Vildu
báðir eiga, Skagfirðingar og Eyfirðingar, en Hæstréttur dæmdi af
báðum — og þótti Skagfirðingum, sem eigi væri réttdæmi. Voru rit-
deilur þessar allharðar og hlífðist hvorugur við þeirra frænda. Ang-
antýr sendi Birni stöku:
Seint mun Bjössi sakafrí
— sjálfur hátt þó gjammi —
ef hann drepur Angantý
uppi í Stórahvammi.
(Stórihvammur er fremst í Austurdal, austanverðum).
Þá kvað Hjörleifur yngri (Kristinsson) á Gilsbakka:
Týri hefur bitið Björn.
Bætir lítt að klaga,
ef menn halda uppi vörn
utan dóms og laga.
Þó að Týri tyftun mót
taki af Bjarnar hrammi,
mælir enginn maður bót
morði í Stórahvammi.