Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 40
40
GLOÐAFEYKIR
Eftirleit á Hofsafrétt 1912
FYRRI HLUTI
Frásaga sú, sem hér.fer á eftir, er rituð eftir frásögn Hrólfs Þor-
steinssonar fyrir nær 25 árum. Árið 1912—1913 bjó Hrólfur á
Skatastöðum. í „Göngum og réttum“ er sagt frá eftirleit á Nýja-
bæjarafrétt 1912, þar sem þeir voru santan Hrólfur og Ólafur Krist-
jánsson. Sú ferð mun hafa verið farin fyrr, en Hrólfur var þá á bezta
aldri, 26 ára, og annálaður göngugarpur.
Það var komið fram á jólaföstu og var það þá ráðið, að fara í eftir-
leit á austurpart Hofsafréttar. Á þessum árum var ekki alls staðar
hætt að færa frá og fjallalömbin settust að, þar sem þau voru á
haustdögum, og báru þar beinin ef þau fundust ekki.
Hrólfur gekk yfir að Litluhlíð og með honum fór þaðan Guðni
Guðnason, vinnumaður þar hjá Guðmundi Ólafssyni og Ólínu ljós-
móður. Guðni hafði búið á Miðvöllum í Svartárdal árin á undan,
en missti konu sína 1. apríl þetta ár, hætti þá að búa og réð sig í
vinnumennsku með yngstu dóttur sína, Ingibjörgu, sem þá var 11
ára. Guðni var kominn af léttasta skeiði, þegar þetta var, 52 ára, en
göngumaður var hann mikill og þaulvanur að ganga til fjalls. Búið
var að hlána og hjarna og færi gott, þegar þeir lögðu af stað. Fyrsta
daginn fóru þeir að Þorljótsstöðum. Þá bjuggu á Þorljótsstöðum
Jónas Jónasson og kona hans Þórey jónasdóttir, myndarkona í sjón
og raun og hin skörulegasta. Þá voru þar á heimilinu Hálfdan son-
ur þeirra hjóna og kona hans Guðrún Jónatansdóttir. Fimmta mann-
eskjan þar á heimilinu var Björg Jónsdóttir, 70 ára ,,niðurseta“
rúmliggjandi.
Næsta morgun lögðu þeir Guðni af stað tveim tímum fyrir dag
og voru komnir fram að kofa við Orravatnsrústir í albjörtu, og þá
leituðu þeir Orravatnsrústir og Bleikálapolla. Svo bjuggu þeir um
sig í Rústakofa og voru þar um nóttina. Ekki höfðu þeir hvílupoka
eða annan útbúnað til að láta sér líða vel, en samt sváfu þeir nokk-
uð um nóttina. Farangur þeirra beggja var 36 pund. Um morgun-
inn fór Guðni í svellþæfða brók frá Þóreyju á Þorljótsstöðum og