Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 77
GLÓÐAFEYKIR
77
góðgirni og hlýju. Hann var drengur góður og vaxandi maður til
hinztu stundar.
Jóhannes Steingiímsson, f. bóndi og hreppstj. á Silfrastöðum, lézt
þ. 10. apríl 1968.
Hann var fæddur á Silfrastöðum 14. des. 1883 og átti þar heima
alla ævi. Var faðir hans Stengrímur bóndi
þar Jónsson, bónda á Merkigili í Austur-
dal, Jónssonar bónda þar Höskuldssonar,
en kona Jóns á Merkigili og móðir Stein-
gTÍms var Guðrún Björnsdóttir frá Hálsi í
Eyjafirði. Var Steingrímur á Silfrastöðum
víðkunnur maður, m. a. fyrir óvenjuleg
hnyttinyrði og mergjuð tilsvör. Kona Stein-
gxíms og móðir Jóhannesar var Kristín
Arnadóttir bónda og smiðs á Úlfá í Eyja-
firði, Einarssonar, og konu hans Guðrúnar
Jóhannesdóttur, Einarssonar. Var Kristín
annáluð gæðakona og svo talið, að Jóhannes
hefði líkst henni mjög um lundarfar og skapgerð. Hún andaðist
1907, en SteingTÍmur lézt 1935, kominn yfir nírætt, og hafði þá
verið blindur fjölda ára.
Jóhannes vann að búi foreldra sinna til fullorðinsára. Mæddi
að sjálfsögðu mest á honum um alla umsýslu eftir að föður hans
förlaðist sýn, enda þótt fátt færi fram hjá gamla manninum og hann
vildi hvarvetna hafa hönd í bagga. Að fullu tók Jóhannes við bris-
forráðum á Silfrastöðum 1915 og bjó þar stórbúi til 1951, er hann
seldi jörð og bú í hendur frænda sínum, Jóhannesi L. Jóhannes-
syni og konu hans Helgu Kristjánsdóttur. Dvaldist hann eftir það
alla stund með þeim hjónum, sem reyndust honum sem eigin börn.
Arið 1915 kvæntist Jóhannes Jóhönnu Jóhannsdóttur, alsystur
Ingibjargar, sjá þátt um hana hér að framan. Voru þau systkinabörn.
Var Jóhanna vel gerð kona og mætavel gefin. En hennar naut eigi
lengi. Hún lézt þ. 4. jan. 1927, tæplega fertug að aldri. Þau hjón
eignuðust tvær dætur og dóu báðar á barnsaldri. Hefði vísast marg-
ur kiknað undir þeirri raun, að vera á skömmum tíma sviptur eig-
inkonu og dætrum. En Jóhannes stóð uppréttur, þótt á honum
skyllu sárir harmar. Hann var andlegt þrekmenni og einlægur trú-
maður, þótt lítt flíkaði tilfinningum sínum á torgum úti.
Jóhannes á Silfrastöðum naut eigi skólagöngu. En hann var
Jóhannes Steingiímsson