Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 79
GLOÐAFEYKIR
79
skyldan til 1948, er þau hjón fluttu til Reykjavíkur, en Sigrirður var
þá fyrir nokkru orðinn fastráðinn verkstjóri við vitabyggingar. Þeg-
ar að loknu námi í unglingaskóla á Sauðárkr. fór Halldór að stunda
sjóinn, aðeins 16 ára gamall. Þar átti hann heima, enda varð sjó-
mennskan hans ævistarf. Hann sótti stýrimannanámskeið á ísafirði
veturinn 1941—1942 og lauk prófi þaðan; eftir það var hann löng-
um skipstjórnarmaður.
Veturinn, sem Halldór var á Isafirði, kynntist hann konuefni
síun, Kristjönu Kjartansdóttur frá Flateyri við Önundarfjörð. Gift-
ust þau skömmu síðar, fluttu til Keflavíkur og voru þar 2 ár, þá
næstu 2 ár á ísafirði. Þaðan lá leiðin til Sauðárkróks, og stóð þar
heimili þeirra hjóna meðan bæði lifðu. Halldór missti konu sína
árið 1960 og varð naumast samur maður eftir. Einkabarn þeirra
hjóna er Margrét Elísabet, húsfr. í Gröf í Miðdölum.
Arið 1963 fluttist Halldór til Hofsóss og fór með skipstjórn enn
sem fyrr. Síðast vann þar að stofnun útgerðarfélags og undirbúningi
að smíði fiskiskips.
Halldór Sigurðsson var þéttvaxinn meðalmaður á velli, burða-
mikill, bjartur yfirlitum, fríðleiksmaður. Hann var mjög skapríkur,
en viðkvæmur, svo sem títt er um örgeðja menn, prúður í dagfari,
vinsæll af félögum sínum og starfsbræðrum, drengur góður. ,,Hann
var harðduglegur til allra verka og ætlaði sér oft ekki af. Hann vann
því oft illa, en vinnan var honum nauðsyn, sem hann hvorki vildi
né gat án verið“.
Sigurður Stejánsson, bóndi á Brúnastöðum í Tungusveit, lézt þ.
28. apríl 1968.
Hann var fæddur á Brenniborg á Neðribyggð 27. nóv. 1906. For-
eldrar: Stefán söðlasmiður og bóndi á Brenniborg, Stefánsson, síðast
bónda á Skíðastöðum á Neðribyggð, Stefánssonar bónda á Ríp o. v.,
Gíslasonar hreppstj. í Hofstaðaseli, Arnasonar, og kona hans Mar-
grét Sigurðardóttir, alsystir Páls í Keldudal, sjá þátt af honum hér
að framan. Er Margrét látin fyrir nokkru, en Stefán lifir enn, þegar
þetta er skrifað (1968), 95 ára gamall, fleygur og fær, og dvelst hjá
sonarsyni sínum á Brúnastöðum og konu hans.
Sigurður óx upp með foreldrum sínum á Brenniborg og átti þar
heiam fram um þrítugsaldur. Arið 1935 gekk hann að eiga Sigur-
laugu Guðmundsdóttur Kaldbak, bónda í Steinholti hjá Vík, Gísla-
sonar bónda í Geitagerði, Arnasonar bónda á Ingveldarstöðum á
Reykjaströnd (drukknaði 1845), Jónssonar, og konu hans Sigríðar