Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 82
82
GLÓÐAFEYKIR
fyrir áfalli og náði aldrei fullri heilsu eftir það, en var þó sí-vinn-
andi, meðan til entist.
Þrjú ei'u börn þeirra hjóna: Sigurpáll, bóndi og kaupm. í Lundi
hjá Varmahlíð, Hólmfriður, húsfr. á Akureyri og Ingimundur,
bóndi í Ketu. Þá ólu þau upp frá barnsaldri sem eigið barn Gyðu
Pálsdóttur, ljósmóður í Reykjavík. Hólmfríður hefir að undanförnu
dvalið í Svíþjóð ásamt eiginmanni, einnig Gyða fóstursystir hennar.
Sigurlaug í Ketu var væn kona og myndarleg í sjón og raun,
hispurslaus og djarfleg í viðmóti og framgöngu. Hún var mikil bú-
kona og hagsýn, víkingur til allrar vinnu og áhugasöm að sama
skapi. Hún gat stundum virzt köld á manninn og stutt í spuna, en
eigi var henni kuldinn eðlisgróinn, hún var viðkvæm í lund og ör-
geðja. Sigurlaug fyrirleit allan flysjungshátt. Djúp alvara var rík í
fari hennar, oft var hún þó kát og viðræðuglöð. Hún var trygglynd.
hjálpfús og hlaut óskiptan hlýhug nágranna sinna.
Osknr Þorleifsson, verkam. á Sauðárkr., lézt þ. 16. sept. 1968.
Hann var fæddur að Fossi á Skaga 10. júní 1892, sonur Þorleifs
Björnssonar frá Skeggjastöðum á Skagaströnd og konu hans Óskar
Sigurðardóttur. Ungur fluttist Óskar með
foreldrum sínum að Kjalarlandi á Skaga-
strönd, þar sem þau hófu búskap vorið
1896. „Ólst Óskar þar upp til fullorðinsára
eða þar til hann giftist sjálfur og stofnaði
eigið heimili á Skagaströnd. Kona hans var
Elin Guðmundsdóttir. Eignuðust þau 3
syni: Engilbert, bílstjóra í Reykjavík,
Jakob, verzlunarmann þar og Þormóð,
einnig verzlunarm. í Reykjavík. Þar vestra
stundaði Óskar lengi sjósókn. Var hann
lengst af formaður, bæði á árabátum og
opnum mótorbátum. Einnig vann hann
nokkuð við smíðar, því að hann var laginn til flestra verka. Þau hjón
slitu samvistum árið 1940 og Öskar flutti hingað til Skagafjarðar
það ár eða hið næsta og stofnaði heimili með Kristjönu Júlíusdóttur
frá Hvammi í Hjaltadal. (Kristjana var ekkja eftir Stefán Jónsson,
Skagfirðing, bónda á Sæunnarstöðum í Hallárdal. G. M.). Bjuggu
þau fyrstu 2 árin á Hofsósi, en síðar hér á Sauðárkróki. Hér stundaði
Óskar mest fiskvinnu, en einnig smíðar o. fl..“. (sr. Þ. Steph.).
Óskar Þorleifsson var í meðallagi hár, grannvaxinn; svipurinn