Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 52
52
GLOÐAFEYKIR
börn á heimili sínu langtímum saman. Ólu þau systkini og upp frá
bernsku Erlu Steingrimsdóttur, nú húsfr. á Meyjarlandi.
Stefán Sigurfinnsson gegndi margháttuðum tiúnaðarstörfum, svo
sem vænta mátti. Hann sat í hreppsnefnd hátt í 40 ár og var oddviti
hreppsnefndar rneir en 20 ár; rækti hann það starf af frábærri reglu-
semi og nákvæmni, svo að naumast varð framar farið; unni og sveit
sinni heilum huga og vildi veg hennar sem mestan í hverjum hlut.
Lengi var hann umboðsmaður Brunabótafél. ísl. og áratugi deildar-
stjóri Skarðsdeildar Kaupfél. Skagf., enda samvinnumaður eindreg-
inn. Þau störf sem önnur, er Stefáni voru falin, innti hann af hendi
af þeirri samvizkusemi og trúmennsku, sem honum var í brjóst
lagin.
Gísli Ólafsson, skáld frá Eiríksstöðum, lézt þ. 14. janúar 1967.
Hann var fæddur á Eiríksstöðum í Svarárdal vestur 2. jan. 1885,
sonur Ólafs bónda þar Gíslasonar, bónda á Eyvindarstöðum í
Blöndudal, Ólafssonar bónda þar, Tórnas-
sonar, og konu hans Helgu Söhradóttur
bónda á Syðri-Löngumýri, Sölvasonar.
Skáldgáfu sína hlaut hann í arf úr báðum
ætturn, var t. a. m. móðurfaðir hans, Sölvi
á Löngumýri, ágætur hagyrðingur.
Gísli óx upp í föðurgarði og var til heim-
ilis á Eiríksstöðum fram um þrítugsaldur,
vann bæði heima þar og heiman. Eigi naut
hann skólagöngu eftir fermingaraldur utan
þess, að hann var einn vetur á unglinga-
skóla, er Árni Hafstað hélt á heimili sínu {
\h'k. En hann las mikið og rnundi vel, varð
því víða heima, sérstaklega í íslenzkum ljóðaskáldskap, eldri og
yngri.
Arið 1914 kvæntist Gísli Jakobínu Þorleifsdóttur úr Bolungarvík
vestra, lifir hún mann sinn. Fyrst voru þau í húsmennsku á Berg-
stöðum í Svartárdal, ungu hjónin, bjuggu þvínæst fáein ár á Hóla-
bæ í Langadal, hurfu þaðan til Blönduóss og loks til Sauðárkróks
árið 1938; þar stóð svo heimili þeirra æ síðan. Gísli stundaði dag-
launavinnu og þó ekki að staðaldri. Hann var sveimhugi og við-
kvæmt náttúrubarn, unni frelsi og sjálfræði, þoldi illa öll bönd, sem
föstum störfum eru jafnan samfara. Þó komst hann sæmilega af,
reisti þeim hjónum íbúðarhús á Sauðárkróki, er hann nefndi Eiríks-
Gisli Ólafsson