Glóðafeykir - 01.11.1974, Blaðsíða 36
36
GLÓÐAFEYKIR
Kvenmannsleysi
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar um mannfjölda á ís-
landi 1. des. 1973 voru Skagfirðingar, bólfastir heima í héraði, 4110
alls, 2370 í sýslunni og 1740 í kaupstaðnum — Sauðárkróki. — Karl-
ar voru alls 2143, 1279 í sýslunni og 864 í kaupstaðnum, konur alls
1967, 1091 í sýslu og 876 í kaupstað. í héraðinu öllu eru konur 167
færri en karlar; má það vissulega teljast ískyggilegt kvenmannsleysi.
Þó er þarna allmikill munur byggðarlaga. Sauðkrækingar eru bezt
settir, þar eru konur 12 fleiri en karlar, og geta því fáeinir látið
eftir sér þann munað að hafa tvær í takinu. Hrepparnir þjást hins
vegar flestir meir og minna af kvenskorti. Mestur er munur kynj-
anna í Holtshreppi (18), Haganeshr. (23), Hofslir. (25), Hólahr. (15),
Lýtingsstaðahr. (36), Staðarhr. (11) og í Skarðshreppi (20). Aðrir
hreppar eru betur settir og Fellshreppur, Rípur-, Akra- og Skefils-
staðahreppar einna bezt. Þar skortir aðeins 2—4 konur til þess, að
fullkomið jafnvægi sé milli kynjana. En ástand og horfur eru alvar-
legar. í sýsluna vantar upp undir 200 konur (188), svo að jafnvægt sé.
Hvað er til ráða, ungir menn?
G. M.
.1