Glóðafeykir - 01.11.1974, Page 44

Glóðafeykir - 01.11.1974, Page 44
44 GLÓÐAFEYKIR Bjóst þó enn í orrahríð — aldrei mun hann ,,bakka“. Boðar heimi heilagt stríð hetjan mælskurakka. Fram hann sækja sjáum vér, sízt við fótum stakk ’ann. En kemur hann aftur — eða fer ofan fyrir bakkann? En nú skeði það sem ekki hafði komið fyrir áður, að Jóni þótti metnaði sínum misboðið með slíkum söguburði og stórreiddist. Kvaðst aldrei hafa trúað því um ritarann vin sinn, að hann hefði ei meiri dómgreind og tæki óvandað sveitaslúður fyrir hreinan sann- leika. Sló hann nú á sig úlfúð og fór allt í þverúð með þeirn vinun- um. Orti Jón mergjaðar vísur á ritara hverja af annarri, svo að rit- ara fannst sem að sér sækti mývargur úr öllum áttum. Þótti honum þungt að bera reiði Jóns, sem sagði það aðeins hafa komið til orða, en eigi fastmælum bundið, að hann byggði af jörðinni. Kvaðst aldrei mundu minnka sig svo, að hann byggði af óðali sínu hverjum sem uppi stæði jarðnæðislaus. Sá nú ritari að eigi mátti við svo búið standa, að þeir skildu með slíkri óvináttu, þar sem líka óvíst var, að þeir kæmu báðir á næsta sýslufund. Tók hann sig því til og orti eftirfarandi: Bragarbót: Illa hljóp ég á mig vinur, á mér vísnahríðin dynur frá þér líka, fyrir það. Hugurinn að því hljóður beinist að hafa það, er sannara reynist, en hlaupa ei á slíkt hundavað. Ástæðan er einmitt þessi: Eitt sinn hingað kemur Bessi og fræðir mig á því, fanturinn. En hvernig átti ég að trúa, að hann færi strax að Ijúga, þótt hann kærni í kaupstaðinn?

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.