Glóðafeykir - 01.11.1974, Síða 78

Glóðafeykir - 01.11.1974, Síða 78
78 GLÓÐAFEYKIR greindur maður, las mikið, hugsaði mikið, braut hvert mál til mergjar. Hann gerði góðlátlegt gys að þeim, sem honum þótti mikl- ir vera á lofti og frekir í framgöngu. Enginn maður var fráhverfari því að halda sjálfum sér fram, seilast til metorða. En eðlislæg íhygli og gætni, samfara skýrri hugsun, traust og þverbrestalaus skapgerð, samfara einstakri prúðmennsku til orðs og æðis, — allt þetta og fleira enn aflaði honum þvílíks trausts samferðamanna, að þeir hlóðu á hann trúnaðarstörfum. Hann sat í hreppsnefnd 1915—1922 og aft- ur 1928—1958, oddviti 1937—1958, hreppstjóri 1948—1961, skatta- nefndarmaður hartnær tvo áratugi, form. búnaðarfél. urn liríð, símstöðvarstjóri og bréfhirðingarmaður fjölda ára. Jóhannes Steingrímsson var eigi framkvæmdamaður í búnaði. En hann hafði löngum stórbú, fjölda fjár og hrossa. Hann var hygginn maður og jörðin höfuðból, enda varð hann vel efnaður. Jóhannes á Silfrastöðum var hár maður og beinvaxinn, afrendur að afli. Hann var fölleitur, toginleitur, stórskorinn nokkuð og eigi smáfríður, svipurinn mikill og festulegur, drættir hreinir. Hann var manna stilltastur og skipti eigi skapi, svo að á sæi, hægur í fram- 2,'öno-u 02' fór að enou óðsleoa; óhlutsamur var liann og fátalaður löngum, en hafði þó yndi af samræðum, gamansamur og glettinn á góðri stund, hló sjaldan en hjartanlega. Jóhannes hugnaðist hverjum manni vel. Skapfesta hans og trygglyndi, réttsýni hans og sanngirni var þvílík, að enginn maður lagði honum lastyrði. Halldór Sigurðsson, skipstj. í Hofsós, lézt þ. 13. apríl 1968. Hann var fæddur á Sjávarborg 20. febrúar 1920. Foreldrar: Sig- urður verkstj. á Sauðárkróki, síðast í Reykjavík, Pétursson, bónda í Áshildarholti í Borgarsveit, Jónssonar síð- ast bónda í Merkigarði í Tungusveit, Jóns- sonar, og seinni kona hans Margrét Björns- dóttir bónda á Illugastöðum á Laxárdal ytra, Benónýssonar bónda á Borgarlæk á Skaga, Oddssonar, og konu hans Ingibjarg- ar Stefánsdóttur bónda í Geitagerði, Sig- urðssonar. Árs^amall fór Halldór með foreldrum sínum að Borgargerði hjá Sjávarborg, þar sem þau voru í húsmennsku um 5 ára skeið, HalldórSigurðsson og síðan til Sauðárkróks; þar bjó svo fjöl-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.