Glóðafeykir - 01.11.1974, Side 83

Glóðafeykir - 01.11.1974, Side 83
GLÓÐAFEYKIR 83 skýrlegur og athugull, fjarrænn á stundum. Hann var skapstilltur maður og viðmótsljúfur, gTeindur vel, kunni sögur margar og sagði vel frá. Hann var búinn ótvíræðum dulrænum gáfum en lét lítt af, enda hlédrægur og hafði sig eigi í frammi, óhlutsamur og eigi há- vaðagjarn, A'insæll maður og virtur af samferðamönnum. Jófinna Mariusdóttir, símastúlka á Sauðárkr. lézt 17. sept. 1968. Hún var fædd á Sauðárkróki 21. sept. 1897, dóttir Maríusar verka- manns þar, Pálssonar sjóm. s. st., Jóhannessonar bónda í Yotmúla í Flóa, Péturssonar, og konu hans Jakobínu Jóhannesdóttur þá vinnum. á Ytri-Bægisá á Þelamörk, Ólafssonar, Hallssonar bónda í Geldingaholti Asgrímssonar. Móðir Jako- bínu var Guðfinna, vinnukona á Bægisá, Björnsdóttir, vinnum. á Minni-Reykjum í Fljótum, Sveinssonar. Jófinna ólst upp hjá foreldrum sínum á Sauðárkróki, gekk þar í barnaskóla og ung- lingaskóla, var síðan í vistum og kaupa- vinnu á sumrum. Arið 1921 hóf hún störf við símastöðina á Sauðárkróki; stundaði hún þau störf til æviloka óslitið að kalla og alfarið frá ársbyrjun 1930, er hún var fastráðin símamær. Við sím- ann var bundið hennar ævistarf. Símavarzla er erilsamt starf og eigi alltaf vinsælt, ef illa gengur að verða við óskum og kröfum, sem oft eru bornar fram — og þó einkum hér áður fyrr — af lítilli háttvísi og litlum skilningi, stundum jafnvel af óbilgirni og frekju. Fór og ekki hjá því, að Finna fengi stundum ónotaorð í eyra. Eigi lét húr það á sér festa, en svaraði fullum hálsi, enda hvorki dirfsku vant nt orðgnóttar. Gekk þá og undan Finnu, er mikið var að gera, og hlífð- ist hún hvergi við. Jófinna Maríusdóttir var í hærra lagi, grannvaxin, dökk á brún á brá, fölleit ásýndurm. Henni var um margt vel farið. Hún hafði yndi af hannyrðum og liggur þar óhemju mikið eftir hana. Hún var trygglynd, greiðvikin og hjálpsöm. Foreldrum sínum fátækum unni hún heitum huga, var Jreirn og öðrum nákomnum nærgætin og hlý, fórnaði þeim öllu og lét einskis ófreistað til þess að þeim mætti líða sem bezt. Hún giftist eigi né átti börn. ]ófin na Marínsdóttir

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.