Glóðafeykir - 01.11.1974, Page 84

Glóðafeykir - 01.11.1974, Page 84
84 GLÓÐAFEYKIR Fallnir félagar „Á aðalfundi Kaupfélags Skagfirðinga 1952 var upp tekinn sá háttur, að minnast þeiiTa félagsmanna, er látizt höfðu frá því er síðasti aðalfundur var haldinn. Hefur sú venja haldizt síðan. Má þykja við eiga að Glóðafeykir hefji birtingu þeirra fáu minningar- orða um þessa föllnu félaga, er skráð voru að þeirn látnum, svo og myndir af þeim, svo sem til hefur náðst“. Þannig hljóða formálsorð þessara æviþátta, er hófu göngu sína í 5. hefti Glóðafeykis og fjölluðu um þá félagsmenn, er fallið höfðu í valinn milli aðalfunda 1951 og 1952. Á fyrstu fundunum voru þætt- irnir lesnir upp, en þótti eigi fært, er frá leið, enda höfðu þeir þá og lengst nokkuð. Var því ákveðið að birta þættina í félagsritinu. Nú hafa komið í Glóðafeyki 210 æviþættir. Rösklega 100 þættir eru til í handriti og eru þá taldir allir félagar, sem látizt hafa til aprílloka s. 1. 3/5 1974. G. M. Sjá Jón Jóhannesson, bls. 59. 1 í Áttum Skagf., Skagf. æviskrám o. v. er Randver, föðurafi Jóns, talinn vera bóndi á Jökli. Lilja, dóttir Jóns, tjáir mér, að Randver, langafi sinn, hafi búið í Stórdal, og muni ruglingurinn til kominn sakir þess, að tveir menn voru í Eyjafirði um þessar mundir, er báru Randvers-nafn og voru báðir Bjarnasyni. Bjó annar á Jökli en hinn í Stóradal, og var sá faðir Jóhannesar, föður Jóns, föður Lilju og þeirra systra. — G. M.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.