Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Síða 19
sá er nú orðinn ungur sveinn,
sem öllum hlutum stjórnar einn.
Kyrieleis.
4. Ævinlegt Ijós inngengur þar,
alla veröld uppljómar,
mitt í myrkri ljómar það ljós,
ljóssins böm það eitt gerir oss:
Kyrieleis.
5. Sannur Guð einn son föðurins,
sjálfs vitjaði mannkynsins,
að leysa oss úr eymdardal,
og arfa gjöra í himna sal.
Kyrieleis.
6. Fátækur kom í heiminn hér,
hans miskunn svo að fengjum vér,
á himni verðum auðugir,
englum heilögum samlíkir.
Kyrieleis.
7. Þetta hefur hann allt oss veitt,
að sýna það oss elskar heitt,
Guðs kristni öll því gleðjist nú,
gjöf þá þakki að eilífu.
Kyrieleis.'3
Notkun sálmsins
Fimm árum eftir útgáfu Sálmabókar eða 1594 gaf Guðbrandur út messu-
söngsbókina Graduale sem í daglegu tali var nefndur Grallarinn. Þar birtist
sálmurinn sem upphafssálmur (introitus) á jólum. Hann er eilítið breyttur í
Grallaranum frá því sem hann var í Hólabók og er aðalbreytingar að fínna í
4. og 5. versi: Orðið „ævinlegt“ í upphafí 4. vers varð „eilíft,“ „það eitt“ í
lokalínunni varð „það“ og „einn son“ í 5. versi varð „sonur.“ Þessar leiðrétt-
ingar eru mjög til bóta gagnvart hrynjandi sálmsins. Hann var prentaður
óbreyttur í öllum útgáfum Grallarans til 1779 og þar með hefur hann verið
13 Sálmabók 1589, s. 8-9, skv. kerfi Páls Eggerts Ólasonar 1924, s. 70, er sálmurinn nr. 16.
17