Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Qupperneq 114
Þau Tanni og Hallfríður hafa gefið til kirkju undir Hrauni18 land það hálft
með öllum landsnytjum ... ,19
Þessi er máldagi í Stafsholti [Stafholti í Borgarfirði] eftir því sem Steini
prestur Þorvarðsson setti. Hann gaf til kirkju allt heimaland og kýr xx [tutt-
ugu] ... .20
Frá svipuðum tíma (miðri 12. öld) eru nokkrir máldagar kristbúa. Þar
bregður hins vegar svo við að stofnunin, í þessu tilviki kristbúið, víkur fyrir
nafngreindum persónum sem viðtakandi gjafanna.
Kristbú það er stendur í Dalbæ í Landbroti er gefið guði og helgum Nicholao
biskupi21 land allt, og það land með er Hraungerði heitir með öllum gæðum,
melteigar ij [tveir] fyrir neðan Steinsmýrarfljót.22
Kristbú það er stendur að Uppsölum [í Landbroti] hefir Guðini23 gefið guði
almáttigum með öllum góða ... ,24
Kristbú það er þeir Bjarnhéðinn og Ögmundur settu að Keldunúpi [á Síðu]
er gefið Kristi og Pétri land það með öllum gæðum og nytjum. ... Lamb skal
marka úr stekk hvert vor og skal Pétur ábyrgjast og gefa um haust er aftur
kemur. Þar skal ala alla þurfamenn og þá er fara skylduerinda.25
Athygli vekur að Kristur var engan veginn eini eigandi kristbúa og í
sumum þeirra átti hann engan hlut. Nafngiftin kristbú getur því ekki vísað
til eignarréttarins heldur verður að leita skýringa annars staðar.26 Þá er rétt
að hafa í huga að sá einn var tilgangur kristbúa að þar mættu fátækir og
þurfamenn líkn finna. En það minnir aftur á að Kristur lét sér einkar annt
18 Líklega átt við Staðarhraun á Mýrum (sbr. Islenzkt fornbréfasafn 1, s. 173-174).
19 íslenzkt fombréfasafn 1, s. 174.
20 íslenzktfombréfasafn l,s. 179-180. ímáldaganum kemur hér á eftir upptalning áfleiri eignum kirkjunnar
en sú málsgrein er talin viðbót frá tímum Mikaels Skálholtsbiskups (1382-1391) (íslenzkt fornbréfasafn
1, s. 180, (4. nmgr.)).
21 Þ.e. Nikulási biskupi í borginni Mýra ( Litlu-Asíu. Um dýrkun hans hér á landi, sjá Margaret Cormack:
Tbe Saints in Iceland. Their Veneration from the Conversion to 1400. Bruxelles 1994, s. 134-138.
22 íslenzkt fornbréfasafn 1, s. 198-199.
23 I Jóns sögu biskups eftir Gunnlaug Leifsson er maður nefndur Guðini hinn góði. Hann á að hafa reynst
sannspár um heilagleika Jóns Ögmundssonar þegar hann sá drenginn ungan að aldri. (Biskupa sögur. I.
Síðari hluti. Sigurgeir Steingrímsson, Ólafur Halldórsson og Peter Foote gáfu út. (íslenzk fomrit XV.
bindi) Reykjavík 2003, s. 178. Sbr. íslenzkt fornbréfasafn 1, s. 195).
24 íslenzkt fornbréfasafn I, s. 199-200.
25 íslenzkt fornbréfasafn 1, s. 201.
26 Sbr. einnig það að hægt var að gefa helgum manni kristfé: „hálfar Tjamir í Svarfaðardal gaf Finnur Þor-
valdsson sancte Johanni baptistæ með vom [þ.e. Gottskálks biskups Nikulássonar á Hólum] tillagi því að
það var allt kristsfé" (íslenzktfombréfasafn. 8. b. Reykjavík 1906-1913, s. 732 (testamentisbréf frá 1520)).
112