Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Blaðsíða 153
Tafla 12. Þeir sem hafa haft mestu áhrif á trúarafstöðu íslendinga 1987
og 2004. Prósentutölur.
1987 2004
Móðir 50,7 36,6
Afí eða amma 13,7 16,5
Prestur 12,7 15,3
Faðir 10,1 7,8
Kennari 3,0 3,4
Vinur eða vinnufélagi 1,6 1,2
Annar 8,2 19,2
Af tölunum í töflu 12 að dæma hafa trúaráhrif móður minkað verulega á
þeim tæpum tveimur áratugum sem hér um ræðir og trúarháhrif föður virð-
ast einnig hafa minnkað nokkuð, þ.e. áhrif frá kjamafjölskyldunni hafa
minnkað. Þar á móti kemur að afi og amma hafa meira að segja í þessu sam-
bandi og presturinn einnig. Aukin áhrif presta á trúarlíf fólks sem greina má
í töflu 12 má að nokkru leyti rekja til þess að seinni könnunin tekur til yngri
aldurshóps en fyrri könnunin (sjá að neðan). Áhrif móður eru samt lang-
sterkust og staðfesta það sem áður er sagt um mikilvægi móður þegar um er
að ræða að leggja grunn að trúarlífinu.
Tafla 13. Mestu trúaráhrifm á íslendinga eftir aldri þeirra, Guðfræði-
stofnun 1987 og Gallup 2004. Prósentutölur.
n=
Frá móður
Frá föður
Frá presti
18-24ára 25-34ára 35-44ára 45-59ára 60-75ára
'87 '04 '87 O \ '87 '04 '87 '04 '87 '04
70 60 70 82 68 79 90 105 66 55
52 60 66 60 65 57 78 75 85 76
24 18 10 8 18 19 9 8 8 11
24 22 24 32 18 24 13 17 8 13
100 100 100 100 100 100 100 100 100 100
Bæði könnun Guðfræðistofnunar (1987) og könnun Gallup (2004) sýna
að beint samband er milli aldurs svarenda og trúaráhrifa móður. Því eldri
sem svarendur eru því meiri em trúaráhrif móður sögð vera. Líklegt er að
tíminn tengist auknum áhrifum móður á trúarlíf svarenda á tvennan hátt.
Annars vegar er það þannig að með auknum aldri verður sá gmnnur skýrari
151