Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1988, Blaðsíða 43
MÚLAÞING
41
inni, 7 talsins. Flestir bæirnir byggðust þó aftur á næstu árum. Margt
af fólkinu hörfaði til Vopnafjarðar og ekki komu allir aftur, þegar fólk
leitaði á ný á þessar slóðir. Ein helsta afleiðing Dyngjufjallagossins
varð sú að fólk streymdi til Vesturheims á næstu árum. í skrá um
burtvikna úr sókninni í bókum Hofskirkju í Vopnafirði á næstu árum
má sjá hverja opnuna eftir aðra þar sem tugir fólks eru sagðir flytjast
til Ameríku.
Fjölskyldan í Heiðarseli flutti fyrst að Refstað í Vopnafirði, nema
Jóhann Frímann sem er skráður í Hofteigi og nefndur bókbindari í
sóknarmannatalinu. Ekki verður nú séð hvenær eða hvar hann lærði
þá iðn, en bókband stundaði hann síðasta veturinn í Heiðarseli. Næsta
ár eru Jón og Solveig talin búendur í Hjarðarhaga. Börn þeirra eru
þar öll, Magnús 19 ára, Elísabet 25 ára og Jóhann Frímann 27 ára.
Kona hans Arnbjörg Andrésdóttir Kjerúlf frá Melum í Fljótsdal er
þar líka og voru þau gefin saman í Hofteigskirkju 31. okt. um haustið.
Er Jóhann Frímann þá aftur nefndur bókbindari og hefur líklega lært
bókband hjá tengdaföður sínum, Andrési á Melum. Næsta ár eru yngri
hjónin talin ábúendur en Jón og Solveig eru nefnd »foreldrar bónda.«
Yngri hjónin eiga tvíbura á 1. ári. Heita þau Anna og Andrés eftir
foreldrum húsfreyjunnar. Þann vetur var Katrín Magnúsdóttir í heimil-
inu með börn sín, Sigríði og Pétur og flytur um vorið til Ameríku.
Næsta ár er drengurinn Andrés dáinn en móðir húsfreyjunnar, Anna
(1998) Jónsdóttir er þar í heimilinu ásamt Jóhönnu (2009) dóttur sinni,
sem er 17 ára. En vorið 1879 flytur þetta fólk frá Hjarðarhaga. Jóhann
Frímann, Arnbjörg, Anna dóttir þeirra og Jóhanna Kjerúlf flytja í
Ormarsstaði, Jón og Solveig flytja í Geitagerði í Fljótsdal, Magnús
sonur þeirra flytur til Ameríku. (Sigríður systir Solveigar bjó þá í
Geitagerði). Ekki er ljóst, hvenær Elísabet Jónsdóttir flytur vestur um
haf en gæti hafa flutt með foreldrum sínum er þau fluttu þangað frá
Kleif í Fljótsdal árið 1882, Jón 62 ára en Solveig 56 ára. Hverfa þau
þar með í þjóðahafið vestra.
Arnbjörg fæddi meybarn 29. janúar 1880 og deyr 2. febrúar. Litla
stúlkan er skírð skemmri skírn eftir móður sinni sama dag og deyr
tveimur dögum síðar. Eru mæðgurnar jarðsettar á Asi 14. febrúar.
Jóhann Frímann er talinn vinnumaður á Ormarsstöðum fram til 1883
en næstu 2 árin er hann nefndur vefari. Hann er nefndur „vjelstjóri“
1886 og 1887. Mun það einsdæmi að maður sé nefndur bókbindari,
vefari og vélstjóri í manntölum á Héraði fyrir 1900. Og hér við bætist
að Sölvi Vigfússon á Arnheiðarstöðum segir í dagbók sinni 22. nóvem-