Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 11

Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 11
 Þjóðmál HAUST 2009 9 Ólaf Ragnar til liðveislu, svo að mynda mætti minnihlutastjórn . Þegar svikin við Sjálfstæðisflokkinn voru um garð gengin, tóku liðsmenn ríkis- stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur til við það með aðstoð framsóknarmanna að ausa svívirðingum yfir Sjálfstæðisflokkinn . Til- gang urinn var að gera út af við flokkinn í kosn ingunum 25 . apríl 2009 . Þingflokkur sjálfstæðismanna veitti svo öfluga mótspyrnu gegn tilraun um minnihlutastjórnarinnar og framsóknar- manna til að svipta alþingi stjórnar skrár- valdinu, að Jóhanna Sigurðardóttir varð að láta í minni pokann . Eftir þingkosningar og myndun meiri- hlutastjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur 10 . maí 2009 hefur það komið í hlut stjórn- ar andstöðunnar, sjálfstæðismanna, fram- sókn armanna og þingmanna Borgara hreyf- ingarinnar, að aðstoða ríkisstjórnina við að afgreiða stærstu mál hennar á þingi, það er aðildarumsókn að Evrópusamband inu (ESB) 16 . júlí og síðan að koma Icesave- málinu í gegnum þingið . Sjálfstæðismenn fluttu tillögu í ESB- málinu um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu, það er að borið yrði undir þjóðina, hvort sækja ætti um aðild að ESB . Þessi tillaga var felld með 32 atkvæðum gegn 30 hinn 16 . júlí . Sannaði stuðningur við tillöguna, að sjálfstæðismönnum hefur á þingi tekist að brjótast út úr því ástandi, að litið væri á þá sem pólitískt holdsveika . Í Icesave-málinu hafa forystumenn Sjálf- stæðisflokksins á þingi átt náið samstarf við Ögmund Jónasson, heilbrigðisráðherra . Ög- mundur hefur farið fyrir þeim innan þing- flokks vinstri-grænna, sem lögðust gegn Icesave-samningunum, sem Svavar Gests - son, sendiherra, gerði í umboði Stein gríms J . Sigfússonar, fjármálaráðherra og for manns vinstri-grænna . Samfylkingarfólki og spunameisturum þeirra líkar ekki þessi samvinna manna úr ríkisstjórnarliðinu með sjálfstæðismönnum . Ég hef gagnrýnt sjálfstæðismenn á þingi fyrir að leggja ríkisstjórninni lið í hennar erfiðustu málum . Þessi gagnrýni var hent á lofti af Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, stjórn málafréttaritara mbl.is, og leitaði hún aðstoðar Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem taldi skoðun mína til marks um, að „skrímsladeild“ Sjálfstæðisflokksins mætti sín enn nokkurs . Þetta orðaval prófess ors ins endurspeglar það andrúmsloft, að leyfilegt sé að tala niður til sjálfstæðismanna, þeir eigi ekki annað skilið . Gunnar Helgi leggst þarna á sveif með málsvörum Baugs manna, þegar þeir tala um „náhirð Davíðs“ . III . Skilningur á því, að flokkspólitískir and stæðingar sjálfstæðismanna leitist við að koma höggi á flokk þeirra, afsakar ekki hina bjöguðu pólitísku fréttamennsku í landinu, hvort sem hún er stunduð af fjölmiðlamönnum, álitsgjöfum eða þeim, sem taldir eru til fræðimanna . Steingrímur J . Sigfússon sýnir mesta pólitíska tvöfeldni um þessar mundir . Hann gengur á bak orða sinna í kosningabarátt- unni fyrir 25 . apríl og stjórnmálabaráttu sinni fyrir ráðherradóminn 1 . febrúar á þann veg, að ekki verður til neins jafnað í stjórn málasögu samtímans . Fyrir þetta er hann mærður af fjölmiðlamönnum . Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins, sagði í leiðara blaðs síns 11 . júlí 2009, að Steingrímur J . Sigfússon hefði stigið afger andi fram sem „hinn sterki leiðtogi ríkis stjórnarinnar“ með því að standa í miðjum stormi Icesave-málsins og Evrópu- sambandsumræðunnar „án þess að gefa eftir eina tommu .“ Ritstjórinn lét þess ógetið, að með þessari afstöðu sinni væri Steingrímur J . að svíkja eigin orð um Icesave og ganga gegn ESB-kosningastefnu flokks síns . Þótt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.