Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 19

Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 19
 Þjóðmál HAUST 2009 1717 Þjóðmál SUmAR 2006 „Sumir urðu mjög reiðir, en margir skildu afstöðu mína . Yfirlýsingin sem ég sendi frá mér var mjög afgerandi en í stuttu máli . Hvar sem ég fór vildi fólk úr öllum flokkum tjá mér þakklæti og saknaðarkennd . Ég gladd ist líka yfir því að samkvæmt skoð ana- könnunum sögðu um 60% þjóðar inn ar sjá eftir mér úr stjórnmálunum .“ En þú lést þig strax hverfa eftir afsögnina . „Já, ég fór til útlanda og var þar í þrjár vikur svo ég þyrfti ekki, við þessar aðstæður, að ræða málið frekar .“ Guðna Ágústssyni blöskrar veldi „auð-manna“ – þ .e . skuldakónganna – á undanförnum árum . Hann lítur réttilega á fjölmiðlamálið sem prófstein á það hverjir raunverulega réðu í landinu, ríkisstjórnin eða skuldakóngarnir (í því tilviki Baugs- veldið) . Hann segir: „Ég hef haldið því fram að upp úr alda- mótunum hafi þróast hér nýtt auðvald, allt öðruvísi athafnamenn en við áttum að venjast . Við höfðum átt mjög heiðarlega athafnamenn, bæði í samvinnuhreyfingu og einkarekstri, fólk sem vann fyrir bæinn sinn, sveitina sína, fyrirtækið sitt, þjóðina sína . En upp úr aldamótunum var komið allt annars konar auðvald, grimmt og gráðugt . Það er sannarlega rannsóknarefni hvaða völdum það náði á Íslandi . Þetta auðvald komst á flug eftir að hafa hnekkt fjölmiðlalögunum umdeildu . Þar með fengu þessir menn að leika lausum hala – og er óhætt að segja að þeir hafi leikið landið grátt .“ Hið nýja auðvald vildi ná yfirráðum yfir stjórnmálamönnunum? „Já, það er engin spurning . Baugsveldið lagði grunn að því upp úr aldamótunum að eignast stjórnmálaflokka . Samfylkingin er til vitnis um það . Borgarnesræða Ingibjarg- ar studdi veldi Baugs í samfélaginu . Og Baug ur, sú mikla samsteypa, tókst á við ráðandi stjórnmálavald . Baugur var aldrei sáttur við Davíð Oddsson og Sjálf- stæðisflokkinn vegna þess að Davíð virtist snúast gegn skapara flokksins, frelsinu . Honum óaði veldi þessara manna og yfir- gangur . Málaferlin gegn Baugi sköpuðu hér stríðsástand, ekki síst á milli Baugs og Sjálf- stæðisflokksins og var ekkert sparað til . Björgólfsveldið og innkoma þeirra feðga var auðvitað Sjálfstæðisflokknum mjög þókn anlegt . S-hóp urinn er síðan alltaf kenndur við Fram sóknarflokkinn . Ég hef reyndar viljað trúa úttekt Ríkis endur skoð- unar á sölu Bún aðar bankans, að þar hafi allt verið með felldu . Ég sem stjórnmálamaður átti reyndar aldrei nein samskipti við þennan hóp fjárfesta . Ég að vísu sat heldur ekki í einkavæðingarnefnd ríkisstjórnarinnar og kom formlega lítið að þessum málum . Þegar stjórnmálavaldið varð undir í fjöl- miðla málinu sumarið 2004 var fátt sem stoppaði „útrásarvíkingana“ . Og í framhald- inu tók hjarðeðlið við . Maður kannast við þetta úr sveitinni þegar hjarðeðlið hleypur í hundana og þeir leggjast á sauðfé . Eins gerðist með „útrásarvíkingana“ . Þeir voru í sama báti og réðu ferðinni, ekkert gat stoppað þá . Þeir fóru hraðar og hraðar og af meiri glannaskap og skuldir þeirra eru nú að falla á þjóðina . Það er heldur engin spurning í mínum huga að þeir sem sátu í ríkisstjórn í aðdrag- anda bankahrunsins, ríkisstjórn Geirs H . Haarde og Ingibjargar Sólrúnar, verða að líta í eigin barm . Þeir brugðust ekki síður en allt okkar eftirlitskerfi . Auðvitað gerist þetta á lengri tíma en engar aðvaranir komu frá ráðherrum efnahagsráðuneytanna þeg ar ég var í ríkisstjórn hvað bankana varðar . Það þarf líka að fara yfir það og rannsaka . Hvar var Fjármálaeftirlitið? Hvar var Samkeppniseftirlitið? Og hvar var Kauphöllin þegar útrásin var komin á þennan ógnarhraða og fyrir liggur að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.