Þjóðmál - 01.09.2009, Page 67
Þjóðmál HAUST 2009 65
1930 .17 Eftir flokksstofnunina haustið 1930
fylgdu íslenskir kommúnistar dyggilega
línunni frá Moskvu . Þeir bergmáluðu það
1932–1934, sem Kremlverjar sögðu, að
hættulegustu andstæðingar kommúnista
væru jafnaðarmenn eða „sósíalfasistar“, og
þegar Kremlverjar skiptu um skoðun um og
eftir 1935 og hófu baráttu fyrir samfylkingu
kommúnista og jafnaðarmanna, gerðu
íslenskir kommúnistar slíkt hið sama . Fóru
forystumenn íslenskra kommúnista, eink-
um Einar Olgeirsson og Brynjólfur Bjarna-
son, reglulega til Moskvu til að gefa skýrslur
og taka við fyrirmælum .
„Við leggjum kommúnistaflokkinn aldrei
niður öðru vísi en sem herbragð,“ sagði
Ein ar Olgeirsson við Benjamín Eiríks son
í ársbyrjun 1937 .18 En ólíkt því, sem gerð-
ist annars staðar á Norðurlöndum, voru
þeir jafnaðarmenn ýmsir til á Íslandi, sem
kusu samstarf við kommúnista, svo að
Sósíalista flokkurinn var stofnaður haustið
1938 . Forystumenn hans voru flestir hinir
sömu og kommúnistaflokksins og héldu
áfram að gefa Kremlverjum skýrslur og
taka við fyrirmælum, eins og ekkert hefði
í skorist . Þeir studdu samstarf Stalíns við
Hitler eftir griðasáttmála einræðisherranna
tveggja sumarið 1939, fögnuðu innrás
Stalíns í Pólland þá um haustið, neituðu
að fordæma árás hans á Finna skömmu
síðar og beittu sér hart gegn breska
hernámsliðinu á Ís landi, uns Hitler réðst
inn í Ráðstjórnar rík in sumarið 1941 og
Stalín gerðist banda mað ur Breta . Kristinn
E . Andrésson fór til Moskvu vorið 1940, gaf
skýrslur og tók við fyrirmælum,19 og Einar
17 Hannes H . Gissurarson: „Erindrekar Kominterns á
Íslandi,“ Rannsóknir í félagsvísindum, IX . b . (Rvík 2008),
647 .–658 . bls .
18 Hannes H . Gissurarson: Benjamín H. J. Eiríksson í
stormum sinna tíða (Rvík 1996), 175 . bls .
19 Arnór Hannibalsson: Moskvulínan (Rvík 1999),
152 .–153 . bls .; Komintern: 495 18 1320, 145–153 . Arnór
Hannibalsson: Moskvulínan, 153 .–154 . bls . „Ratschläge
für die Politik der Kommunisten in der Sozialistischen
Olgeirsson fullviss aði leyni þjónustumenn
frá Ráðstjórnarríkjun um sumarið 1942
um, að íslenskir kommúnist ar myndu
reyna að þoka Íslandi út af áhrifasvæði
Bandaríkjanna eftir stríð .20 Næsta
aldarfjórðung sendi Sósíalistaflokkurinn
oft fulltrúa á þing kommúnista í Mið-
og Austur-Evrópu .21 Fulltrúar hans
sóttu einnig þing kommúnistaflokks
Ráðstjórnarríkjanna í Moskvu 1952, 1956,
1959, 1961 og 1966, og hefur þar veist
tækifæri til að gefa skýrslur og taka við
fyrirmælum, auk þess sem Einar Olgeirsson
var tíður gestur í sendiráði Kremlverja
í Reykjavík .22 Alþýðubandalagið hafði
starfað sem kosningabandalag frá 1956,
en varð stjórnmálaflokkur 1968, um leið
og Sósíalistaflokkurinn var lagður niður .
Þótt það samþykkti að slíta sambandi
við kommúnistaflokka þeirra ríkja, sem
Einheitspartei Islands,“ 9 . maí 1940; Komintern:
495 15 104 1–2 . Einnig: Lbs . án safnmarks . Bs . Þóru
Vigfúsdóttur . Bréf Kristins E . Andréssonar .
20 Jón Ólafsson: Kæru félagar (Rvík 1999), 127 .–130 . bls .
Komintern: 495 74 182, stimplað 30 . 11 . 1942 .
21 Sjá t . d . „Furðuleg hlédrægni Einars Olgeirssonar,“
Mbl. 15 . júní 1949; „Reykjavíkurbréf,“ Mbl. 20 . júní
1949 . Örstutt klausa kom í Þjóðviljanum þriðjudaginn
14 . júní um, að Einar hefði komið til Reykjavíkur úr ferð
til Danmerkur og Tékkóslóvakíu 13 . júní . Um ferðina til
Austur-Þýskalands, sjá Jón Ólafsson: Kæru félagar, 152 . bls .
22 „Kveðja Brynjólfs Bjarnasonar á 19 . flokksþingi
kommúnistaflokks Sovétríkjanna,“ Þjv. 5 . nóvember 1952;
„Brynjólfur við fótskör meistarans,“ Mbl. 31 . október 1952
(þar sem þýðing á ræðunni eftir Moskvuútvarpinu var
birt); „Íslenska þjóðin hefur aldrei unað og mun aldrei una
erlendri yfirdrottnun,“ Þjv. 9 . mars 1956 (ávarp Eggerts
Þorbjarnarsonar á flokksþinginu 1956 í heild); „21 . þing
kommúnistaflokks Sovétríkjanna,“ Þjv. 27 . janúar 1959;
„Er Kristinn þar einn frá Íslandsdeildinni?“ Mbl. 28 .
janúar 1959; „Kristinn og Tryggvi Emilsson í Moskvu,“
Mbl. 3 . febrúar 1959; J[ón] B[jarnason]: „Áður langt
líður skal okkar verkafólk hafa betra líf og meira öryggi
en nokkurs staðar í veröldinni,“ Þjv. 14 . febrúar 1959
(viðtal); „Kristinn Andrésson stígur í stólinn hjá Krúsjeff,“
Mbl. 5 . febrúar 1959; Kristinn E . Andrésson: „Flokksþing
í Sovétríkjunum,“ Þjv. 14 . apríl 1959; „Krústjoff nefnir
dæmi um réttarfarsbrot í Sovétríkjunum á dögum Stalíns,“
Þjv. 1 . nóvember 1961; „Krúsjeff ógnar,“ Mbl. 19 . október
1961 (leiðari); „23 . þing kommúnistaflokks Sovétríkjanna
hefst í dag,“ Þjv. 29 . mars 1966; „Kommúnistar hræddir
við að sýna sitt rétta andlit,“ Mbl. 29 . mars 1966 .