Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 25
25
19. mál. Þingsályktun um skipan í nefndir stjórnir og ráð á vegum þjóðkirkjunnar
„Kirkjuþing 2012 ályktar að við skipan í ráð, stjórnir og nefndir á vegum þjóðkirkjunnar
og undirstofnana hennar, verði valddreifing, lýðræði og meðalhóf haft að leiðarljósi.
Sérstaklega verði hugað að jafnréttisáætlun og eðlilegu jafnvægi milli landsbyggðar og
höfuðborgarsvæðis.“
Kirkjuráð hefur haft samþykkt kirkjuþings að leiðarljósi þegar skipað er í nefndir, ráð og
stjórnir á vegum kirkjunnar.
31. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000 Ný 19. gr.
starfsreglnanna hljóði svo: Varamenn í kirkjuráð fái send öll opinber gögn af fundum
kirkjuráðs.
Þessu hefur verið hrint í framkvæmd og hafa starfsreglurnar verið birtar í Stjórnartíðindum.
32. mál. Þingsályktun um að kannaður verði áhugi sóknarnefnda á að stofnað verði
Sóknasamband Íslands
Kirkjuþing ályktar að beina því til sókna innan samstarfssvæðanna að mynda með sér
formlegan samstarfsvettvang.
Kirkjuráð hefur sent sóknarnefndum ályktun kirkjuþings.
33. - 35. mál. Þingsályktun um fjármögnun kirkjustarfs o.fl.
„Kirkjuþing 2012 ályktaði að fela kirkjuráði að setja þróun verkefna er varða öflun
sjálfsaflafjár í forgang. Það gera á eftirfarandi hátt:
• Prófastsdæmin og Biskupsstofa vinni að því í sameiningu að miðla þekkingu, veita
stuðning og móta leiðbeiningar til þeirra safnaða sem vilja fara slíkar leiðir til
fjármögnunar. Haldin verði námskeið sem standi starfsmönnum, sjálfboðaliðum og
prestum til boða en þar verði einkum kynnt úrræði á þessu sviði og gerð umsókna.
Einnig verði boðið upp á fræðslu um fjáröflun m.a. með sölu og aðgangseyri.
• Kannað verði hvort setja eigi á stofn stöðugildi til slíkra verkefna, sem verði
safnaðarstarfi þjóðkirkjunnar til framdráttar og sá kostnaður sem af því hlytist kynni
að skila sér margfalt til baka.
Loks beinir kirkjuþing því til kirkjuráðs að vinna sérstaklega að því verkefni sem orðað er
í lokamálsgrein 35. máls, en hún hljóðar svo:
„Þá telur kirkjuþing að nauðsynlegt sé að skrá og meta það sjálfboðastarf sem fer fram
innan sóknanna vítt um landið.“
Kirkjuráð vísaði málinu til biskups Íslands.
36. mál. Þingsályktun um kirkjulega viðurkenningu.
Kirkjuráði var falið að búa málið til kynningar.
Málið er í vinnslu.
37. mál. Þingsályktun um miðaldadómkirkju – ályktun kirkjuþings „Kirkjuþing 2012
ályktar að ekki verði horfið frá þeirri deiliskipulagsvinnu í Skálholti sem hafin er og telur
að ekki beri að setja þeirri vinnu nein takmörk. Hins vegar brýnir kirkjuþing kirkjuráð og
vígslubiskup Skálholtsstiftis að skoða vel allar hliðar þessa máls og skuldbinda kirkjuna