Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Blaðsíða 40
40 41
stjórn Skálholts. Það er nú orðið ljóst að verkefnið er að valda illdeilum og flokkadráttum
meðal stofnana þjóðkirkjunnar og forystumanna hennar. Við sem höfum unnið að
verkefninu með kirkjuráði og öðrum forystumönnum þjóðkirkjunnar viljum hinsvegar
ekki taka þátt í, eða vera valdir að slíkum átökum. Við sjáum okkur ekki fært að halda
verkefninu áfram í því andrúmslofti og þeim farvegi sem það er nú í innan kirkjunnar,
og leggjum því til að kirkjuráð dragi fyrirhugaða tilllögu á kirkjuþingi um málið til baka.
Fyrir hönd áhugahóps og Gestaþjónustunnar ehf.
Guðjón Arngrímsson“
Upphaf málsins má rekja til þess að á fund kirkjuráðs þann 3. ágúst 2011 komu
forsvarsmenn verkefnis um byggingu tilgátuhúss í formi miðaldadómkirkju í Skálholti, til
að kynna hugmyndina.
Kirkjuráð gerði grein fyrir hugmyndunum í skýrslu til kirkjuþings 2011. Jafnframt buðu
forsvarsmenn verkefnisins kirkjuþingsfulltrúum sem það vildu kynningu á hugmyndinni
meðan á kirkjuþinginu stóð.
Kirkjuþing 2011 samþykkti eftirfarandi ályktun:
Tilgátu-miðaldakirkja
Kirkjuþingi 2011 hafa verið kynntar hugmyndir áhugahóps fjárfesta um endurgerð
miðaldakirkju í Skálholti. Kirkjuþing felur kirkjuráði að kanna, án skuldbindinga, alla þætti
í fjármögnun, skipulagi og rekstri varðandi byggingu tilgátukirkju í Skálholti.
Af því tilefni samþykkti Kirkjuráð á fundi sínum í desember 2011 að óska eftir að
vígslubiskup í Skálholti undirbyggi fyrir næsta kirkjuráðsfund tillögur að verkferli hvað
varðar framangreinda könnun. Í samræmi við þá ákvörðun lagði vígslubiskup fram tillögur
um verkferla vegna hugmyndar um endurreisn miðaldadómkirkju í Skálholti á fundi
kirkjuráðs í janúarmánuði 2012. Ráðið samþykkti að fela vígslubiskupi í Skálholtsumdæmi
og framkvæmdastjóra kirkjuráðs að starfa með áhugahópnum um verkefnið.
Málið var að nýju til umfjöllunar á fundi kirkjuráðs í Skálholti í febrúar 2012 og var þá
eftirfarandi bókað:
„Biskup greindi frá fundi sínum með framkvæmdastjóra kirkjuráðs og forsvarsmönnum
verkefnisins. Kirkjuráð samþykkti að aflað yrði allra nauðsynlegra upplýsinga s.s. um áhrif
á Skálholt og umhverfi þar, fjármögnun og rekstur og áhættu sem verkefnið kynni að fela
í sér fyrir kirkjuna, svo ráðinu sé unnt að taka afstöðu til málaleitunar forsvarsmanna
verkefnisins. Samþykkt var að af hálfu kirkjunnar starfi með vígslubiskupi Skálholtsumdæmis
og framkvæmdastjóra kirkjuráðs að þessum undirbúningi formaður fasteignanefndar
þjóðkirkjunnar Bjarni Kr. Grímsson og Ásbjörn Jónsson, kirkjuráðsmaður.“
Á fundi kirkjuráðs í aprílmánuði 2012 var síðan eftirfarandi bókað:
„Tillögur vegna Miðaldadómkirkju
Lögð var fram greinargerð framkvæmdastjóra kirkjuráðs, Ásbjörns Jónssonar,
kirkjuráðsmanns, Bjarna Kr. Grímssonar, formanns fasteignanefndar þjóðkirkjunnar og