Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Side 68

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Side 68
68 69 embættanna og þjónustu kirkjunnar með hliðsjón af umboði nefndarinnar og hlutverki biskupafundar. Á því stigi lágu ekki fyrir fullmótaðar tillögur til að ræða. Nefndin hafði áður átt samtal við biskup Íslands um störf nefndarinnar. Enda þótt nefndin sé skipuð af kirkjuþingi og skili af sér beint til þingsins lítur nefndin svo á að mikilvægt sé að hafa sem víðtækast samstarf við þá sem hafa beint með skipan prestsþjónustunnar að gera og það á ótvírætt við um biskup Íslands og biskupafund. Því telur nefndin rétt að biskup Íslands og biskupafundur fái umsagnir presta og sókna, eins og minnst er á í tillögum nefndarinnar sem hér eru til umfjöllunar og leggi svo tillögur fyrir næsta kirkjuþing. Nema kirkjuþing ákveði aðra meðferð þessa máls. Um presta og um sóknir Í þjóðkirkjulögunum er að finna lagagreinar sem sérstaklega varðar presta, þar sem finna má skilgreiningar á stöðu þeirra og hlutverki. Þær helstu eru þessar: 33. gr. Þjónandi prestur þjóðkirkjunnar er hver sá sem á grundvelli köllunar og vígslu gegnir föstu prestsstarfi í þjóðkirkjunni. Hann lýtur tilsjón kirkjulegra stjórnvalda í kirkjulegum efnum þótt hann gegni launuðu starfi á vegum aðila sem ekki heyra undir þjóðkirkjuna. 34. gr. Í hverju prestakalli skal vera einn sóknarprestur. Sóknarprestur er hirðir safnaðar og gegnir prests- og predikunarembætti samkvæmt vígslubréfi og eftir því sem reglur og venjur segja til um. 35. gr. Í fjölmennum prestaköllum er heimilt að skipa fleiri presta en einn. Séu prestar fleiri en einn í prestakalli skulu þeir undir forustu sóknarprests skipta með sér störfum í samræmi við almennar starfsreglur þar að lútandi, sbr. 59. gr. 36. gr. Biskupi Íslands er heimilt að ákveða að í prófastsdæmum starfi héraðsprestar. Og síðar í þjóðkirkjulögunum segir almennt um presta: 43. gr. Nánari ákvæði um starfsskyldur presta skulu settar í starfsreglur, sbr. 59. gr. Í Starfsreglum um presta (2011) segir m.a.: Í 1. gr.: Prestsembættið skiptist í starf sóknarprests, héraðsprests, sérþjónustuprests og prests. Sú skipting er byggð á lögum og starfsreglum kirkjunnar og varðar starfssvið og ábyrgð einungis. Í 2. gr. má lesa um hlutverk presta, en það byggir m.a á vígslubréfi presta: Samkvæmt köllun, vígsluheiti og vígslubréfi skal sérhver prestur hennar: -boða Guðs orð í anda evangelísk lúterskrar kirkju - hafa sakramentin um hönd - veita sálgæslu og hlýða skriftum og veita leiðsögn í andlegum efnum og trúarlífi - vera málsvari fátækra, boðberi réttlætis og kærleika Guðs - fræða unga sem eldri í sannindum fagnaðarerindisins - ferma, gifta, vitja sjúkra og nauðstaddra, jarðsyngja látna, styðja syrgjendur til huggunar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.