Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 72

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 72
72 73 Tölfræði Enda þótt messur séu kjarninn í prestsstarfinu og starfi sóknarinnar væri nauðsynlegt að ná líka utan um allar kirkjulegu athafnirnar og fá auk talnanna um fermingarbörn, tölur um fjölda skírna, hjónavígslna og útfara. Tölur sem nú liggja fyrir eru ekki nógu margar til að unnt væri að taka þær með og ekki vannst tími til að ná í fleiri tölur að þessu sinni. Það er nauðsynlegt að gera í næstu lotu til að fá enn skýrari mynd af umfangi prestsþjónustunnar, hvernig hún birtist í raun og hvað einkenni hana. Norrænar kirkjur, eins og sú finnska og norska, hafa mjög greinargóðar tölfræðilegar upplýsingar um messur, kirkjusókn, fjölda skírna, fermingarbarna o.fl. Í Finnsku kirkjunni, fermdust 51.905 árið 2012, það er 85,6% af þeim sem voru 15 ára á árinu, sem er fermingaraldurinn hjá þeim (í hverjum hópi eru yfirleitt um 23). Frá árinu 2008 hefur þeim fækkað um 9,9% sem fermast í kirkjunni þar og á það um land allt. Ekki hefur eins mikil fækkun verið innan Norska kirkjunnar, eða um 1,1% frá 2008. Hins vegar fækkaði skírnum þar um 10% milli áranna. Að meðaltali koma um 92 í messur í Norsku kirkjunni og hefur fólki fækkað ár frá ári nema 2011 og messusókn er nú um 4% yfir allt landið. Þá er fróðlegt að lesa að í 2200 messum á aðfangadag komu að meðaltali um 247 (alls yfir 550 þús.) en á páskadag komu aftur á móti um 85 að meðaltali. Innan Norsku kirkjunnar er eins og hér margt annað á dagskrá sóknanna, eins og tónleikar, kyrrðarstundir með tónlist, og fjölbreytt menningarstarf, en þessa atburði sóttu um 1,5 millj. (Upplýsingar frá Hagstofu Noregs). Innan Ensku kirkjunnar er vel haldið utan um alla tölfræði og þar hefur verið fylgst árlega í yfir 80 ár með þátttöku barna í kirkjulegu starfi. Tölur eru sláandi en þátttaka barna hefur hrapað mikið, (ef 100 börn mættu í barnastarfið 1930 eru þau 9 í dag), skírnum fækkar verulega og fleira umhugsunarvert má lesa úr þeim gögnum. Árið 1980 voru t.d. fermingarbörn í Ensku kirkjunni um 98 þús. en tuttugu árum síðar er sú tala komin í 34 þús. En tölur sýna sem betur fer einnig vöxt í starfi og gefa vísbendingar um hvað það er sem safnaðarfólki finnst mikilvægt í sinni sókn. Tölfræði hins kirkjulega starfs eru afar mikilvæg gögn er varpa ljósi á þróun starfsins, hvað það er sem vex og hvað lætur undan. Með því að skoða tölur um land allt, um fjölda þeirra sem sækja messur og athafnir, mætti ráða hver staða messunnar er og hinna kirkjulegu athafna í þjóðkirkjunni. Því miður liggja ekki fyrir á aðgengilegan hátt tölur er sýna þróunina hvað varðar fjölda fermingarbarna, skírna, hjónavígslna og útfara. Mikil vinna væri að safna þeim tölum sem eru til í eldri skýrslum presta, messuskýrslum og starfsskýrslum. Þær eru ekki til í tölvutæku formi eins og nú er unnt að gera en skýrsluformið sem nú er mest notað býður upp á. Sem dæmi má nefna að undanfarin ár hefur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra verið fylgst nákvæmlega með þátttöku í helgihaldi, fræðslustarfi barna og fullorðinna. Tölur um messusókn í þjóðkirkjunni er að finna í skýrslum presta úr 126 sóknum fyrir allt árið 2012. Það er aðeins tæplega helmingur allra 272 sókna landsins, en voru samt það nákvæmar og upplýsandi að nefndin birtir þær hér með. (Sjá töflu 2 hér að neðan).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.