Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 141
141
32. mál kirkjuþings 2013
Flutt af innanríkisráðherra
Þingsályktun um viðaukasamning við Samkomulag íslenska
ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og
starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997
Kirkjuþing samþykkir viðaukasamning frá 1. janúar 2014 við Samkomulag íslenska ríkisins
og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar
frá 10. janúar 1997. Jafnframt samþykkir kirkjuþing 2013 nauðsynlegar breytingar á lögum
um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 til að viðaukasamningurinn
nái fram að ganga. Þær breytingar gildi sama tíma og viðaukasamningurinn.
Viðaukasamningur
um tímabundna breytingu á fjárframlögum frá ríkinu samkvæmt samkomulagi íslenska
ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna
þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997, sbr. 60. gr. laga nr. 78/1997.
1. gr.
Við hrun fjármálakerfisins í október 2008 komust fjármál ríkisins í uppnám. Tekjur
ríkisins hafa síðan dregist verulega saman og útgjöld aukist og ríkissjóður er rekinn með
meiri halla en nokkur dæmi eru um. Til þess að ná árangri í ríkisfjármálum er nauðsynlegt
að grípa til margþættra aðgerða til lækkunar á útgjöldum ríkisins.
Í þessu skyni fellst þjóðkirkjan á að leggja sitt af mörkum og hreyfir ekki andmælum við
að framlög ríkisins samkvæmt samningi frá 10. janúar 1997 verði lækkuð á árinu 2014 til
samræmis við almennan niðurskurð á flestum sviðum ríkisins.
Skerðing á umsömdum framlögum til þjóðkirkjunnar á fjárlagaliðnum 06701
Þjóðkirkjan/Biskup Íslands á árinu 2014 er 1% miðað við fjárlög 2013 eða 14,1 milljónir
króna. Niðurskurður 2013 var 16 milljónir króna. Niðurskurður 2014 verður því samtals
327,3 milljónir króna miðað við fjárlög 2009.
2. gr.
Þrátt fyrir að aðilar samkomulagsins líti á framangreint samkomulag um eignaafhendingu
og skuldbindingu sem fullnaðaruppgjör þeirra, vegna þeirra verðmæta sem ríkissjóður
tók við árið 1907, eru aðilar sammála um að ofangreind skerðing á framlagi ríkisins
vegna launagreiðslna samkvæmt 3. gr. samkomulagsins, leiði ekki til riftunar kirkjujarða
samkomulagsins.