Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Page 126
í þriðja lagi, hverjar af þessum breytingum urðu varanlegar og hvaða spor
skilja þær eftir sig í samtímalögum ?
Margir mundu telja að svörin við þessum spurningum séu að miklu
leyti sjálfgefm, en bein svör er erfitt að finna í fræðiritum. Til eru heilu
bækurnar um forn lög sem minnast varla á trúarlög, þar eru lög Rómverja
talin upphaf vestrænna laga. Það er helst fyrsta spurningin og þá aðallega
fyrri hluti hennar sem nýtur vinsæida sem rannsóknarefni.3
Merkar fornleifar, t.d. bókasöfn á leirtöflum, hafa fundist í Sýrlandi,
í rústum af borgunum Ebla4; Mari, Úgarit5; og Alalakh. Þetta er nyrsta
svæðið í Kanaanslandi, þarna finnast textar sem minna á atburði Biblíunnar,
en eru frá eldri tíma. Á tímanum fyrir stofnun Israelsríkis (um 1100 fyrir
Krist) ríkir þarna fjölgyðistrú,6 æðstur guða er El, síðar fer Jahve (Yahve,
YHWH) að koma inn í myndina.7 Lífsviðurværi fólksins er hjarðbúskapur
og ræktun, en konungar ríkja í borgunum, a.m.k. af og til. Að öllu þessu
leyti er ekkert ósamræmi milli fornleifafræðinnar og frásagna Biblíunnar.
Kanversku þjóðirnar og ættbálkarnir eiga í stöðugum ófriði sín á milli og
það er líka kunnugt úr Biblíunni.
Hebrear voru kanversk þjóð sem samanstóð af 12 ættbálkum, þar af
virðist Júda vera stærstur. Lengi framan af virðast þessir ættbálkar vera undir
oki Filistea auk þess að berjast innbyrðis.8 9 En svo sameinast þeir með þeim
hætti að allir ættbálkarnir 12 gangast undir sameiginlegt úrskurðarvald
hins eina Guðs, Jahve. Sameinaðir sigra Hebrear svo Filistea, leggja undir
sig Kanaansland og stofna Ísraelsríki. Eingyðistrúin er orðin til og verður
ríkistrú ísraels.7,9 Frásagnir Biblíunnar af aðdraganda og stofnun Ísraelsríkis
eru miklu mun nákvæmari en hliðstæðar frásagnir hjá öðrum þjóðum.
3 Edelman, D. V., 1996: The triumph of Elohim: from Yahwisms to Judaisms. Eerdmans, 262 pp.;
Goodman, L. E., 1996: God of Abraham. Oxford University Press, xvii, 364 pp.; Klinghoffer,
D., 2003: The discovery ofGod: Abraham and the birth ofmonotheism. lst ed. Doubleday, xvi, 348 pp.
4 Magnusson, M., 1977: The archaeology ofthe Bible lands, British Broadcasting Corporation
5 Smith, M. S„ 2001: The origins of biblical monotheism : Israel’s polytheistic background and the
Ugaritic texts. Oxford University Press, xviii. 325 pp.
6 Sommer, B. D„ 2009: The bodies of God and the world of ancient Israel. Cambridge University
Press, xv, 334 pp.
7 Moor, J. C. d„ 1990: The rise ofYahwism: the roots of Israelite monotheism. Bibliotheca ephemeridum
theologicarum Lovaniensium ; 91, Leuven University Press, xii, 320 pp
8 Davies, P. R. and J. Rogerson, 2005: The Old Testament World, Second Edition, T&T Clark
International.
9 Noort, E„ J. v. Ruiten, and J. C. d. Vos, 2009: The land of Israel in Bible, history, and theology-.
studies in honour of Ed. Noort. Brill, xvii, 471 pp.
124