Orð og tunga - 01.06.1988, Side 31

Orð og tunga - 01.06.1988, Side 31
Friðrik Magnússon: Hvað er títt? 19 ekki fyrir nema 3.638 sinnum alls, en það svarar aðeins til 6,68% lesmálsorðanna. Þetta þýðir að hvert lýsingarorð kemur að meðaltali 3,08 sinnum fyrir. Allt aðra sögu er að segja af samtengingum. Þær eru ekki nema 33, eða aðeins 0,47% orðanna, en þær koma hins vegar alls 6.631 sinni fyrir og eru 12,17% lesmálsorð- anna. Meðaltíðni samtenginga er því 200,94. Þama kemur mismunandi notkun orðflokkanna glöggt fram; sumir orðflokkar eru orðmargir en hvert orð kemur frekar sjaldan fyrir, aðrir eru orðfáir en hvert orð er þeim mun oftar notað. Þá er komið að því að svara spurningunni: Hver eru algengustu orðin? Svar við henni er að finna í töflu 9. Þar eru sýnd 70 algengustu orðin ásamt tíðni þeirra og tíðniröð, svo og í hversu mörgum textum hvert orð kemur fyrir. Einnig er getið um orðflokkinn. Orð með sömu tíðni fá sama tíðniraðarnúmer. Til dæmis hafa fornafnið enginn og sögnin fá sömu tíðni (117) og fá því sama tíðni- raðarnúmerið, þ.e. 53, þannig að þau eru í rauninni númer 53-54 í röðinni. Af 70 algengustu orðunum eru atviksorð flest eða 22, 15 fornöfn, 14 sagnir, 9 nafnorð (það algengasta þó ekki nema í 28. sæti), 7 samtengingar (þar af 3 meðal 8 algengustu), aðeins 2 lýsingarorð (það algengasta ekki nema í 43. sæti) og 1 töluorð. I könnun sem þessari, þar sem lesmálsorðin eru ekki ýkja mörg og textarnir fáir, er alltaf hætta á að orð sem mikið eru notuð í einum eða mjög fáum textum hafi óeðlilega háa tíðni. Ef litið er á töflu 9 sést að af 70 algengustu orðunum koma 54 fyrir í öllum textunum 11, þar af öll 27 algengustu orðin. Þetta bendir til þess að taflan sýni nokkuð eðlilega mynd af algengustu orðtmum í íslensku ritmáli og að þau orð sem koma fyrir í öllum textunum 11 (og jafnvel þau sem koma fyrir í öllum nema einum) eigi öll heima á lista yfir 70 algengustu orðin. Hins vegar má vera að lesmálsorðafjöldinn sem hggur að baki þessum niðurstöðum sé ekki nægilega mikill til að segja nákvæmlega til um tíðniröð orðanna, nema e.t.v. þeirra algengustu. Um þetta er þó ekki gott að segja þar sem engar kannanir hafa áður verið gerðar á tíðni orða í íslensku ritmáli svo mér sé kunnugt, aðeins á tíðni orðmynda. I töflu 9 hafa hins vegar komist fáein orð sem eru mjög algeng í fáum textum og hafa því óeðhlega háa tíðni. Þetta eru t.d. nafnorðin barn sem kemur fyrir í 7 textum, hraun í 2 textum og lög í fimm textum, og fornafn annarrar persónu þú sem kemur fyrir í 6 textum. Ólíklegt er að þessi orð séu eins algeng í íslensku ritmáli og ætla mætti af töflu 9. Um algengustu orð hvers orðflokks verður fjallað nánar í köflum 6.2 til 6.9. I töflu 10 er að finna ýmsar upplýsingar um tíðnidreifingu orða. I fyrsta dálki er tíðni orðanna, í öðrum dálki fjöldi þeirra orða sem hafa þá tíðni og í þriðja dálki kemur fram hversu stór hluti þessi fjöldi er af heildarorðafjöldanum, 7.083 orðum. I fjórða dálki er síðan lagður saman fjöldi orðanna úr öðrum dálki til að sýna hversu mörg orð hafa þá tíðni sem sýnd er í fyrsta dálki eða hærri tíðni, og í fimmta dálki kemur fram hversu stór hluti þessi samanlagði fjöldi er af heildarfjölda orða. Til dæmis má nefna að tíðnina 2.525 hefur aðeins eitt orð (sögnin vera sbr. töflu 9) og þetta eina orð er 0,01% af heildarfjölda orða. Annað dæmi: Tíðnina 765 hefur einnig aðeins eitt orð (sögnin hafa sbr. töflu 9) sem er einnig 0,01% heildarorðafjöldans en þau orð sem hafa tíðni >765 eru 10 alls og eru þau 0,14% heildarorðafjöldans. Þriðja dæmi: Tíðnina 8 hafa 84 orð og eru
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244
Side 245
Side 246
Side 247
Side 248
Side 249
Side 250
Side 251
Side 252

x

Orð og tunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.